Oddi Patreksfirði
Oddi Patreksfirði

Í kjölfar þeirrar umræðu og þess atvinnuóöryggis sem hefur verið að skapast hjá fiskverkafólki og sjómönnum vegna þrenginga í atvinnugreinum þeirra, sér stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga sér ekki annað fært en senda frá sér eftirfarandi stjónarsamþykkt.

" Það skýtur skökku við, þegar lokanir og uppsagnir fiskverkafólks vegna niðurskurðar á þorkskkvóta dynja yfir, þá skuli útfluttningur á óunnum sjávarafurðum aukast. Fyrstu fjóra mánuði nýs kvótaárs jókst útfluttningur á óunninni ýsu um 32% borið saman við sama tíma 2006. Þá hefur útfluttningur á óunnum þorski aukist um 13% fyrir sama tímabil. Þetta er í hrópandi ósamræmi við það að boðaðar lokanir og uppsagnir séu vegna niðurskurðar kvóta og hráefnisskorts.

Það er skýlaus krafa að stjórnvöld beiti sér fyrir breytingum á útfluttningsreglum óunninns sjáfarafla. Algjört afnám kvótaálags ofan í boðaðann niðurskurð á þorskkvóta var mikið ógæfuspor sem þarf að leiðrétta.

Stjórnvöld bera fulla ábyrgð á fiskveiðistjórnunarkerfinu og þeim afleiðingum sem það er að valda sjávarbyggðum í landinu. Vegna þessa ber stjórnvöldum skylda til að bregðast strax við með skjótvirkum aðgerðum sem stuðla að auknu atvinnuöryggi hjá sjómönnum og fiskverkafólki á Íslandi"

Samþykkt samhljóða á stjórnarfundi Verkalýðsfélags Vestfirðinga

mánudaginn 3. mars 2008.

Síðasti stjórnarfundur ársins hjá Verkalýðsfélagi Vestfirðinga fór fram í gær. Formaður fór yfir stöðu mála í kjarasamningunum, allheitar umræður voru um framkomnar kröfugerðir sambanda sem félagið er aðili. Var það samdóma álit stjórnarmanna að ekki væri ástæða til að kvika frá framsettum kröfum.

 

...
Meira

Ályktun stjórnar Verkalýðsfélags Vestfirðinga vegna niðurskurðar á veiðiheimildum Þorskkvóta fyrir komandi fiskveiðiár.

  

"Vegna niðurskurðar á Þorskkvóta á komandi fiskveiði ári skorar stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga á ráðamenn þjóðarinnar að taka til endurskoðunar regluna um kvótaálag á útflutning á ísuðum óunnum fiski.   Nú liggur fyrir að með boðuðum niðurskurði þorskafla mun landvinnsla á Vestfjörðum verða mjög illa úti miðað við óbreytt fyrirkomulag. Ráðamönnum þjóðarinnar ber skylda til að tryggja sem öflugasta landvinnslu sjávarafurða á Íslandi, en það verður ekki gert með því að hvetja útgerðir til að senda sjávarafla óunninn úr landi "

 

Greinargerð.

 

 

Á Vestfjörðum er samkvæmt nýjustu tölum frá Hagfræðideild Háskóla Íslands, hæsta hlutfall verkafólks við fiskvinnslu og tengd störf.  Með boðuðum niðurskurði á aflaheimildum í Þorski munu afleiðingarnar því hafa veruleg áhrif á störf og kjör þessa hóps.  Með því að breyta reglunni um útflutning á óunnum sjávarafurðum þannig að tryggt verði að sem mestum afla verði landað til vinnslu á Íslandi, þá munu afleiðingarnar ekki verða eins harkalegar og gera mætti ráð fyrir.

 

Með reglugerð nr.750/1999 var þessum reglum breytt á þann veg að aðeins sá hluti aflans sem ekki er endanlega vigtaður hérlendis er nú látinn sæta álagi. Þessi skerðingarregla hefur frá 1.sept. 2001 verið 10% af óvigtuðum afla en var í upphafi 25% af öllum afla. Gert er ráð fyrir að kvótaálagið hverfi alveg á næsta fiskveiðiári.

 

Fiskvinnsluna og innlenda fiskmarkaði munar tvímælalaust mest um þann fisk sem nú er fluttur út óunninn. Miðað við boðaðann aflasamdrátt í þorski á næsta fiskveiðiári skiptir það fiskvinnsluna mestu máli að eiga kost á að bjóða í þann fisk sem ella færi á erlenda fiskmarkaði.  

Framkvæmdastjórn SGS krefst þess að unnið verði að markvissri stefnumörkun um atvinnuöryggi verkafólks í fiskvinnslu," segir í ályktun framkvæmdastjórnar SGS, sem var að ljúka á Siglufirði, ,,þannig að geðþóttaákvarðanir kvótaeigenda geti ekki lagt lífsgrundvöll fjölda manns í rúst í einum vettvangi."...
Meira
"Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga, haldinn á Ísafirði 5. maí 2007, fagnar allri umræðu um atvinnumál, en hvetur jafnframt til opinnar og beinskeyttrar umræðu um fjölgun atvinnutækifæra sem fela í sér betur launuð störf á félagssvæði Verk-Vest. Fagna ber þeirri umræðu sem þegar er í gangi, en ljóst er að sú umræða er því miður lituð af komandi kosningum....
Meira
Vefumsjón