Mikill meirihluti samninganefnda innan landsambanda ASÍ samþykktu samkomulag sem samninganefnd ASÍ skrifaði undir við Samtök atvinnulífsins (SA) þann 25. júní síðast liðinn. Samkvæmt því munu almenn taxtalaun því hækka um kr 6.750 frá 1. júlí 2009,  taxtalaun skrifstofufólks og faglærðra iðnaðarmanna hækka um kr 8.750.  Gangi aðgerðir ríkisstjórnarinnar eftir þannig að svigrúm myndist til vaxtalækkana mun það ýta enn frekar undir að samkomulagið við SA haldi. Að því gefnu munu almenn taxtalaun því hækka aftur þann 1. nóvember um kr 6.750 og taxtalaun skrifstofufólks og faglærðra iðnaðarmanna um kr 8.750 þá munu þeir launahópar sem ekki eru á taxtalunum fá 3,5% hækkun að því gefnu að laun þeirra hafi ekki hækkað frá 1. janúar - 1. nóvember 2009. Aðrar kjarabreytingar sem áttu að taka gildi þann 1. janúar 2010 munu þá taka gildi þann 1.júní 2010 má þar nefna að taxtalaun hækka um kr 6.500.
...
Meira
Einn af hópunum sem mættu á kynningarnar
Einn af hópunum sem mættu á kynningarnar
Það er mikið um að vera hjá vinnuskólakrökkum í Ísafjarðarbæ þessa dagana, auk þess að snyrta umhverfi Ísafjarðarbæjar þá hefur einnig verið í gangi öflugt fræslustarf, enda á vinnuskólinn að vera sambland af vinnu, leik og fræslu. Krakkarnir ásamt flokksstjórum hafa sótt námskeið í skyndihjálp og þá hefur Verk Vest einnig verið með kynningu sem miðar að því að gera krakkana meðvitaðri um þeirra stöðu á vinnumarkaðnum svo eitthvað sé nefnt. En sum þeirra eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði á meðan þau sem eru eldri hafa öðlast nokkra reynslu í þeim efnum. Það er nauðsynlegt að krakkarnir fái að kynnast mikilvægi þess að þekkja sinn rétt þegar fyrstu skref eru stigin á vinnumarkaði. Þetta framtak Ísafjarðarbæjar er því lofsvert og áríðandi að framhald verði á.  
Bæjarstarfsmenn að verki. Mynd bb.is
Bæjarstarfsmenn að verki. Mynd bb.is
« 1 af 2 »
Samkomulag um framlengingu og breytingu á kjarasamningi við Launanefnd sveitarfélaga var undirrituð í gærkvöldi. Gildistími samkomulagsins er frá 1. júli 2009 - 30. nóvember 2010 án endurskoðunarákvæða og tekur ný launatafla gildi frá og með 1. júli 2009 verði samningurinn samþykktur. Í samkomulaginu kveður einnig á um að lágmarkslaun fyrir fullt starf skuli vera kr. 157.000 frá 1. júli 2009 kr. 165.00 frá 1. nóvember og kr. 170.000 þann 1. júní 2010.  Þetta á við um starfsmenn sem eru 18 ára og eldri sem hafa starfað í fjóra mánuði samfellt hjá sama sveitarfélagi.  Laun fyrir tímamælda ákvæðisvinnu og fermetragjald í ræstingu hækka um 11.4% á samningstímanum.  Orlofsuppbót hækkar í kr 25.800 fyrir árið 2010 en desemberuppbótin verður óbreytt út samningstímabilið....
Meira
Vegagerðarmann í vanda á ströndum.  Mynd strandaspjall
Vegagerðarmann í vanda á ströndum. Mynd strandaspjall
Samninganefnd SGS og ríkisins náðu loksins samkomulagi sem var undirritað á áttunda tímanum þann 4. júlí. Frá þessu er greint á heimasíðu SGS en þar má einnig finna helstu áhersluþætti samkomulagsins og framkvæmdaáætlun. ...
Meira
Samkvæmt því sem kemur fram í spá hagdeildarinnar þá munum landsmenn sigla inn í tvö mjög erfið ár þar sem landsframleiðsla mun dragast mikið saman og mikið atvinnuleysi mun vera viðvarandi. Ekki fari að draga úr atvinnuleysinu fyrr en kemur fram á árið 2011. Eins og við velflest höfum fengið að kynnast þá hafa heimilin ekki farið varhluta af þeim þrengingum sem yfir okkur ganga og eins og kemur fram í spánni þá mun staða heimilanna áfram verða þröng þar sem ráðstöfunartekjur lækka og atvinnuástandið verður áfram slæmt.
...
Meira
Vefumsjón