...
Meira
Stjórn og trúnaðarráð Verk Vest er boðuð til fundar fimmtudaginn 25. júní kl. 20:00 í húsi félagsins Pólgötu 2 á Ísafirði. Mjög áríðandi er að sem flestir sjái sér fært að mæta vegna þess samkomulags sem nú er á borðinu í viðræðum við atvinnurekendur og stjórnvöld.
Fundarefni.
1. Staða í kjaraviðræðum
2. Stöðugleikasáttmáli
3. Önnur mál.
Laugardaginn 27. júní kl. 15 - 18 verður fjölskyldudagur á vegum Verk-Vest í Raggagarði í Súðavík. Þar hafa heimamenn komið upp fallegum fjölskyldugarði með mörgum og fjölbreyttum leiktækjum.
Sitthvað verður til skemmtunar og boðið verður upp á grillaðar pylsur og kennske eitthvað fleira. Félagsmenn eru hvattir til að mæta með fjölskyldum sínum og eiga saman góða og skemmtilega stund í fögru umhverfi.
Nú er einmitt rétti tíminn til að treysta og styrkja sambandið við fjölskyldu og félaga.
Upplýsingar um Raggagarð og söguna bak við hann eru hér: http://www.raggagardur.is/
Alþýðusamband Íslands stóð fyrir ráðstefnu um ábyrgð og hlutverk stjórnarmanna í líferyissjóðum í Þjóðmenningarhúsinu þann 11. júní sl. Aðaláhersla ráðstefnunnar var á siðferði og ábyrgð í viðskiptum, en það var megin inngangurinn í erindum þeirra Salvarar Norðdal sem hefur förstöðu fyrir Siðfræðistofnun Háskóla Íslands og Stefáns E. Stefánssonar sem kemur frá Eþikos, fræðslu- og rannsóknarmiðstöð Háskólans í Reykjavík. Þá fluttu einnig erindi Kristján Gunnarsson formaður SGS og Guðmundur Gunnarsson formaður rafiðnarsambandsins, en þeir fóru yfir þá vinnu sem hefur verið í gangi hjá miðstjórn og skipulags- og starfsháttarnefnd ASÍ er varða reglur um innri starfsemi lífeyrissjóðanna og samfélagslega ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóðanna. Forseti ASÍ setti ráðstefnuna og fór yfir þær árásir sem lífeyrissjóðirnir hefðu orðið fyrir af hálfu fjölmiðla eftir bankahrunið. Þar hefuð sjóðirnir orðið fyrir mjög ómaklegum árásum, sem og fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar í stjórnum sjóðanna. Nánar má lesa um ráðstefnuna á vef ASÍ.