Mikil eining ríkti á fundi formanna aðildarfélaga ASÍ um stöðuna í viðræðum við atvinnurekendur og stjórnvöld um kjaramálin og stöðugleikasáttmála, sem lauk síðdegis í gær.  Á fundinum var samþykkt tillaga mótatkvæðalaust þar sem lýst var fullum stuðningi við forystu og samninganefnd ASÍ sem nú fundar linnulítið í karphúsinu.


Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ fór yfir stöðuna í viðræðum við SA og stjórnvöld og Ólafur Darri Andrason deildarstjóri hagdeildar ASÍ reifaði drög að nýrri hagspá.  Báðir drógu þeir upp afar dökka mynd af ástandinu. 

Nánar á vef ASÍ

Sr. Magnús er af sjómönnum kominn og lætur ekki sitt eftir liggja í þeim efnum. Mynd. bb.is
Sr. Magnús er af sjómönnum kominn og lætur ekki sitt eftir liggja í þeim efnum. Mynd. bb.is

Í Sjómannadagsguðþjónustum á Ísafirði og í Hnífsdal var rómantík sjómennskunar ásamt framtíðarhorfum í greininni megininntak í predikun séra Magnúsar Erlingssonar sóknarprests í Ísafjarðarprestakalli.  Í ræðunni kemur Magnús víða við og tekur á sumum af þeim álitamálum sem sjómenn standa frammi fyrir í daglegum störfum og þeim vanda sem við öll stöndum frammi fyrir um þessar mundir eins og lesa má í þessu inngripi í predikun Magnúsar. 

" Ég þekki engar patentlausnir á yfirstandandi vanda okkar fremur en þið. En ég veit samt að neikvæðni mun ekki hjálpa okkur. Við þurfum að standa saman, hjálpast að og trúa því, vona og treysta því að það sé hægt að ná landi og komast í góða höfn. Það er mikil værðmætasköpun, sem á sér stað í sjávarútvegi. Fiskur er ekki einvörðungu frábær fæða heldur skapar hann okkur mikilvægan gjaldeyri. Ein mikilvægasta auðlind okkar Vestfirðinga eru gjöful fiskimið. Án þeirra getur byggðin hér vestra ekki dafnað. 

Við þurfum að endurheimta það orðspor, sem greinin hafði einu sinni. Það eru ótrúlega margir Íslendingar, sem hafa enga hugmynd um allt það þróunarstarf, uppgötvanir og vísindaþekkingu, tæknilausnir og nýjungar, sem verið er að vinna með í íslenskum sjávarútvegi. Við þurfum að halda þessu á lofti. Kynna sjávarútveginn fyrir unga fólkinu. Og vera stolt yfir því, sem bátaflotinn okkar og fyrirtæki í sjávarútvegi eru að gera. Við þurfum að endurheimta stoltið
. "

Predikunina má lesa í heild sinni á vef Ísafjarðarkirkju.

Júlíus Geirmundsson í hópsiglingu frá Ísafirði
Júlíus Geirmundsson í hópsiglingu frá Ísafirði
« 1 af 4 »


Verkalýðsfélag Vestfirðinga sendir

sjómönnum og fjölskyldum

þeirra árnaðaróskir

á hátíðisdegi sjómanna.


Á fundi helstu hreyfinga launamanna á Íslandi með Samtökum atvinnulífsins í morgun var ákveðið að halda áfram viðræðum framlengingu kjarasamninga og gerð stöðugleikasáttmála.  SA hefur lagt mikla áherslu á lækkun stýrivaxta og segir það forsendu endurreisnar atvinnulífs í landinu.  Eftir litla lækkun stýrivaxta Seðlabankans í gær var jafnvel búist við því að SA segði sig frá samningaborðinu.  Það gerðist ekki. 


Þess í stað ákváðu ASÍ og önnur samtök launafólks, ásamt SA, að gera tilraun til að þroska áfram aðgerðaráætlun í samstarfi við ríkisstjórn sem gæti leitt til þess að Seðlabankinn lækkaði vexti enn frekar.  Það kom fram á fundinum að glíman við ríkisfjármálin væri verkefni af þeirri stærðargráðu að það ynnist ekki án aðkomu aðilavinnumarkaðarins. Sú staða setur mikla ábyrgð á hendur þessum aðilum.

Um þetta er fjallað á vef ASÍ og SGS.

Sjá einnig frétt á mbl.is

Frá trúnaðarráðsfundi Verk Vest
Frá trúnaðarráðsfundi Verk Vest

Á fundi stjórnar og trúnaðarráðs Verkalýðsfélags Vestfirðinga sem lauk á tíunda tímanum gærkvöldi, var samþykkt samhljóða að hvatt yrði til frekari viðræðna um tilboð sem SA lagði fram þann 20. maí sl.  Eftir farandi yfirlýsing var send til SGS sem svar samninganenfndar félagsins.
 

"Í ljósi þeirra stöðu sem nú er komin upp eigum við að sýna þá ábyrgð að hvetja til áframhaldandi viðræðna á þeim grundvelli, frekar en þeim verði slitið. Allt tal um uppsögn á samningum eða slit á viðræðum verður að koma frá Samtökum atvinnulífsins, þar eigum við ekki að hafa frumkvæðið."

 

Vefumsjón