Gríðarleg vonbrigði
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir á vef sambandsins í dag að þetta séu gríðarleg vonbrigði.
Eftirfarandi frétt er af vef ASÍ:...
Meira
Stjórn og trúnaðarráð Verk Vest hefur verið boðað til fundar vegna tilboðs sem SA hefur lagt fram í viðræðum um stöðugleika á vinnumarkaði. Á formannafundi SGS hjá sáttasemjara í gær var farið yfir stöðuna og það tilboð sem SA hefur lagt fyrir samninganefnd ASÍ. Tilboðið gengur út á að tvískipta launahækkunum sem áttu að koma inn þann 1. mars sl. þannig að frá 1. júlí hækki taxtalaun á almennum markaði um kr.6.750, þann 1. nóvember hækki laun aftur um kr.6.750 og þá muni launaþróunartrygging upp á 3,5% einnig koma til framkvæmda. Þá vilja SA fresta launahækkun sem átti að taka gildi 1. janúar 2010 til 1.september 2010.
...
Eigi árangur þess samkomulags sem nú er undir að verða stöðugleiki og sátt, þá verða þeir sem hærri hafa tekjurnar að taka á sig stærri hluta byrðanna. Það verður að hafa algjöran forgang að eyða þeim ójöfnuði sem ríkir í þjóðfélaginu í dag. Höfum slagorð 1. maí að leiðarljósi og tökum öll þátt í að byggja réttlátt þjóðfélag."