Hannes Friðriksson formaður Bíldudalssóknar þakkar góðar gjafir
Hannes Friðriksson formaður Bíldudalssóknar þakkar góðar gjafir
« 1 af 6 »
Á stjórnarfundi Verk Vest sem var haldinn laugardaginn 16. maí í Gamla skóla á Bíldudal voru Bíldudalssókn færðar góðar gjafir. En á stjórnarfundi þann 1. apríl sl. var samþykkt að eignarhlutur Verk Vest í Gamla skóla yrði færður Bíldudalssókn að gjöf. Með gjöfinni fylgdi allt innbú í eigu félagsins og aðrir þeir munir í eigu félagsins sem hafa sögulegt gildi fyrir Bíldudal. Þá var sóknarnefnd einnig færð peningagjöf til viðhalds á húsinu.  Formaður sóknarnefndar ásamt sóknarpresti Bíldælinga færðu félaginu góðar þakkir fyrir höfðinglega gjöf og vonaðist til áframhaldandi góðs samstarfs við félagið í framtíðinni....
Meira
Frá aðalfundi 2008
Frá aðalfundi 2008

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn laugardaginn 23. maí kl.11:00 í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði 4 hæð.


Dagskrá:

  • 1. Skýrsla stjórnar.
  • 2. Ársreikningar starfsárið 2008.
  • 3. Lýst kjöri stjórnar, varamanna í stjórn, trúnaðarmannaráði og skoðunarmanna.
  • 4. Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð.
  • 5. Tillaga trúnaðarmannaráðs um laun stjórnar.
  • 6. Önnur mál.

Félagsmenn hvattir   til að mæta á fundinn og nýta málfrelsis, tillögu- og atkvæðisrétt.   
Að fundi loknum verður boðið upp léttar veitingar.

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga

« 1 af 2 »
Fyrsti kynningarfundur ráðgjafa Virk starfsendurhæfingarsjóðs var haldinn í fundarsal Verk Vest í dag. Ætlunin var að ráðgjafar frá Virk í Reykjavík kæmu til fundarins en vegna hvassviðris var ekki unnt að fljúga vestur í tæka tíð. Í stað þess að fresta fundinum var brugðið á það ráð að Fanney Pálsdóttir ráðgjafi sjóðsins á Vestfjörðum sæi um kynninguna sem tókst í alla staði mjög vel. Nokkuð líflegar umræður urðu að lokinni kynningunni og var það mál fundarmanna að hugmyndafræðin um snemmbær inngrip í veikindaferli einstaklingsins væri úrræði sem hefði vantað....
Meira
Stærri orlofsbústaðurinn í Svignaskarði
Stærri orlofsbústaðurinn í Svignaskarði

Samkvæmt 4. gr. orlofslaganna er orlofstímabilið frá 2. maí - 15. september og skal orlof veitt í einu lagi á tímabilinu. Þó er heimilt samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaganna að stytta orlofið á tímabilinu þannig að aldrei verði veittir færri en 14 dagar samfellt á sumarorlofstímabilinu, enda liggi sérstakar rekstrarástæður að baki. Í því samhengi er rétt að benda á að sé orlof tekið utan ofangreinds orlofstímabils að ósk atvinnurekanda þá lengist orlofið um 25%.  Þau fyrirtæki sem hyggja á sumarlokun ber að gera það með minnst 1 mánaðar fyrirvara og skal sú ákvörðun liggja fyrir eigi síðar en 1. apríl þannig að hún nái til allra starfsmanna.

...
Meira

Á fundi forseta og varaforseta Alþýðusambandsins með oddvitum stjórnarflokkana í gær voru áherslur ASÍ gegn bráðavanda heimila og atvinnulífs lagðar fram. Á fundinum fóru fulltrúar launafólks yfir drög að þríhliða sáttmála um stöðugleika, en verkalýðshreyfingin hefur lagt á það áherslu að koma í veg fyrir að mistök í hagstjórn undanfarinna ára endurtaki sig.

...
Meira
Vefumsjón