Starfsfólk ríkisins fær orlofsuppbót eins og aðrir
Starfsfólk ríkisins fær orlofsuppbót eins og aðrir
Verkalýðsfélagi Vestfirðinga hefur borist eftirfarandi bréf þar sem kynnt er ákvörðun um hækkun orlofsuppbótar fyrir árið 2009. Bréfið er sent frá Fjármálaráðuneytinu, en félagið er aðili að kjarasamningi SGS við fjármálaráðherra.

"Til upplýsingar fyrir stéttarfélög og stofnanir

Við núverandi stöðu kjarasamninga eru ríkisstarfsmenn einu félagsmenn stéttarfélaga á vinnumarkaði, sem ekki fengju hefðbundna orlofsuppbót í júní næstkomandi. Til að stuðla að jafnri stöðu stéttarfélaga í aðdraganda þjóðarsáttar um launaþróun hefur fjármálaráðherra ákveðið að starfsmenn ríkisins sem fengið hafa orlofsuppbót skv. kjarasamningum fái orlofsuppbót árið 2009 að upphæð kr. 25.200 eins aðrir launþegar.

Um skilyrði vísast til sömu ákvæða kjarasamninga og giltu fyrir síðasta ár. Hafi einhver stéttarfélög ákvæði um hærri orlofsuppbót en 25.200 skal hún vera sama fjárhæð og sl. ár."

Þeir starfsmenn ríkisstofnana sem verða varir við að þessar greiðslur berist ekki með réttum hætti í júní næst komandi eru vinsamlegast beðnir að snúa sér til félagsins.  

Fanney á fullu við að koma sér fyrir
Fanney á fullu við að koma sér fyrir
« 1 af 2 »
Við gerð kjarasamninga 2008 var ákveðið að koma á fót sameiginlegum endurhæfingarsjóði vinnuveitenda og verkalýðshreyfingarinnar.  Í dag heitir sjóðurinn starfsendurhæfingarsjóðurinn VIRK og er rétt að benda á heimasíðu sjóðsins í því tilefni www.virk.is .  Megin hlutverk sjóðsins er að vera með snemmbær inngrip í veikinda- eða slysaferli þannig að einstaklingurinn fái þau úrræði sem nýtast honum sem best til að komast út á vinnumarkaðinn á ný.  Á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun sjóðsins hefur farið fram mikið skipulags og uppbyggingarstarf. Eitt af verkefnum sjóðsins er að gera samninga við sjúkrasjóði stéttarfélaganna um ráðningu endurhæfingarráðgjafa....
Meira
Kröfugangan á leið niður Pollgötuna
Kröfugangan á leið niður Pollgötuna
« 1 af 7 »
Veðrið lék við göngumenn í kröfugöngu stéttarfélaganna á 1. maí á Ísafirði og var mikið fjölmenni í göngunni. Óvenju mörg kröfuspjöld voru á lofti og lýsir það kannski best því ástandi sem er í samfélaginu. Gengið var sem leið niður Pollgötuna að Edinborgarhúsinu þar sem hátíðarhöldin fóru fram. Aðalræðumaður dagsins var Matthildur Helga og Jónudóttir feministi og framkvæmdarstjóri hjá vestfirska tölvufyrirtækinu Snerpu. Matthildur lagði út frá "Nallanum" í ræðu sinni og kom einnig inn á það uppbyggingarstarf sem væri framundan, þar yrðu allir að vinna að sameiginlegu markmiði....
Meira
Starfsmenn 3X setja upp merkið
Starfsmenn 3X setja upp merkið
« 1 af 2 »
Nokkuð er um liðið síðan stærstur hluti merki félagsins fauk af og skildi eftir sig frekar ljótt sár á vegg húsnæðis Verkalýðsfélags Vestfirðinga. Höfðu gestir og gagngandi orð á því að ástandið væri félaginu til skammar. Nú hefur verið unnin bragarbót þar á, en starfsmenn 3X - Technology  sáu um hönnun og uppsetningu á merkinu.
Verkalýðsfélag Vestfirðinga hélt almennan félagsfund í gær. Tilefnið var kosning fulltrúa á ársfund Lífeyrissjóðs Vestfirðinga sem verður haldinn þann 21. maí nk. á Hótel Ísafirði. Samkvæmt reglum sjóðsins á félagið rétt á 28 fulltrúum sem hafa atkvæðisrétt á fundinum, en fundurinn er opinn öllum sjóðsfélögum sem hafa þar málfrelsi og tillögurétt. ...
Meira
Vefumsjón