1. maí
Byggjum réttlátt þjóðfélag og tökum öll þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna.
Á Ísafirði verður lagt af stað í kröfugönguna frá Baldurshúsinu, Pólgötu 2 kl. 14:00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi. Á Suðureyri verður lagt af stað frá Brekkukoti kl. 14:00 og gengið að sudlauginni þar sem hátiðarhöldin hefjast með boðsundi. Á Patreksfirði verða hátíðarhöld með hefðbundnu sniði þar sem boðið verður í kaffi í félagsheimilinu. Þá verður að vanda haldið 1. Maí BINGÓ og eru vinningarnir veglegir að vanda, en meðal vinninga er vikudvöl í olofshúsi Verk Vest og helgardvöl í orlofsíbúð félagsins.
Þá hvetur 1. maí nefnd stéttarfélaganna alla sem luma á kröfuspjöldum frá opnu fundunum á Silfurtorgi í vetur til að mæta með þau í gönguna, eða jafnvel búa til ný og mæta með þau.
Meira