22. apríl 2009

Gleðilegt sumar !

Verkalýðsfélag Vestfirðinga óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra góðs og heillaríks sumars.


Skrifstofan verður að venju lokuð sumardaginn fyrsta - opnum aftur kl 08:00 á föstudag.

Þeir sem hafa fengið úthlutað bústöðum hjá félaginu eru minntir á að staðfesta pantanir fyrir 20. maí nk. Minnum einnig á skráningar í orlofsferðir félagsins um Ísafjarðardjúp, Eyjafjörð og fjölskyldudag í Raggagarði í Súðavík. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins í síma 456519.  Fyrstir koma fyrstir fá.

Bíldudalur - Mynd:  Mats
Bíldudalur - Mynd: Mats
Í fréttum svæðisútvarps Vestfjarða kemur fram sú ósmekklega hótun framkvæmdarstjóra Perlufisks á Bíldudal að öllu starfsfólki verði sagt upp verði byggðarkvóti lagður af.  En eingöngu 20% af hráefnisöflun Perlufisks treystir á byggðarkvóta að sögn framkvæmdarstjóra Perlufisks. Þetta kemur fram í viðtali sem svæðisútvarp Vestfjarða átti við framkvæmdarstjóra fyrirtækisins, viðtalið í heild má nálgast hér....
Meira
« 1 af 2 »

Vinnumálastofnun hefur gefið út bækling þar sem fyrirtæki, sveitafélög, stofnanir og frjáls félagasamtök eru hvött til að nýta sér þau vinnumarkaðsúrræði sem í boði eru til að fjölga starfsfólki.  Þarna eru ýmsir möguleikar reifaðir og er vert að benda sveitarfélögum sérstaklega á ýmsa möguleika er varðar átaksverkefni. Einnig er rétt að benda iðnfyrirtækjum og öðrum þeim sem gætu nýtt sér starfsþjálfunarsamninga eða reynsluráðningar til fjölgunar starfa.  Þá er einnig vert að benda fyrirtækjum í nýsköpun á sem vilja þróa nýjar viðskiptahugmyndir á að nýta sér starfsorkuúrræði til fjölgunar störfum í nýsköpun.

...
Meira
Önundur Jónsson dregur úr vikum sem fóru í pott
Önundur Jónsson dregur úr vikum sem fóru í pott
Umsóknir um sumarhús hjá Verk Vest eru töluvert fleiri fyrir orlofssumarið 2009 en hefur verið  undanfarin ár, til samanburðar voru 134 umsóknir í ár á móti 119 umsóknum síðasta sumar, sem var þó mjög gott.  Þrátt fyrir fjölgun umsókna virðast þær dreifast nokkuð vel og þurftir eingöngu að draga um nokkrar tímabil í júlí í Svignaskarði og Ölfusborgum.  Aldrei slíku vant þurfti ekki að draga um verslunarmannahelgina sem hefur hingað til verið mjög umsetin af félagsmönnum....
Meira
mynd: VB
mynd: VB
Í samstarfi við BSRB og Starfsgreinasamband Íslands, SGS, boðaði Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, til fundar með trúnaðarmönnum verkalýðsfélaga innan heilbrigðisþjónustunnar þann 6. apríl sl.  Fundarefni var staða mála og framtíðarhorfur í heilbrigðisþjónustu. Fundurinn var fjölmennur og vel sóttur af félögum af landsbyggðinni og var sérstaklega ánægjulegt að sjá hve vel var mætt frá SGS félögum.  Að lokinni framsögu ráðherra var opnað fyrir umræður sem voru nokkuð líflegar....
Meira
Vefumsjón