Meira
Meira
Formannafundur SGS skorar á HB Granda
Fundur formanna aðildarfélaga SGS sem haldinn var í dag skorar á HB Granda að láta launahækkanir upp á 13.500 krónur koma strax til framkvæmda. Fundurinn samþykkti einróma eftirfarandi ályktun:
„Sú ávörðun stjórnar HB Granda, að leggja til að greiða hluthöfum 8% arð er forkastanleg og óásættanleg með öllu í því ástandi sem nú ríkir. SGS skorar á fyrirtækið að láta launahækkanir upp á 13.500 krónu koma strax til framkvæmda.
Vissulega eru til fyrirtæki, eins og HB Grandi, sem vel geta staðið undir þeim kjarabótum sem hefðu komið til framkvæmda 1. mars s.l. ef kjarasamningar hefðu verið framlengdir. Formannafundurinn hvetur þess vegna þau fyrirtæki sem standa vel, að láta launataxtahækkanirnar koma til framkvæmda strax.
Launafólk á Íslandi hefur ekki vikist undan því að bera ábyrgð í samfélaginu. Á sama hátt krefst formannafundurinn þess að atvinnulífið í landinu, með samtök sín í farabroddi, axli einnig samfélagslega ábyrgð."
Miðstjórnarfundur ASÍ sendi frá sér eftirfarandi ályktun um siðlausa ákvörðun stjórnar HB-Granda. Þessi ákvörðun setur samkomulag samninganefndar ASÍ við Samtök Atvinnulíf í algjört uppnám. Þá hefur gjörningurinn einnig hleypt illu blóði í launþega sem fyrir stuttu fengu ekki greiddar út umsamdar kauphækkanir sem áttu að koma til framkvæmda þann 1. mars sl. vegna samkomulagsins.
Siðlaus ákvörðun stjórnar HB-Granda
"Miðstjórn ASÍ telur tillögu stjórnar HB-Granda um hundruð milljón króna arðgreiðslur til eigenda siðlausa við núverandi aðstæður og skorar á stjórnina að draga tillöguna til baka ella greiða starfsfólki áður umsamdar launahækkanir án tafar.
Meira
Launahækkanir komi til framkvæmda strax !
Meira
Námskeið um réttindi atvinnulausra
Þann 6. apríl verður haldið á vegum Verk Vest og Fos Vest námskeið fyrir félagsmenn um rétt til atvinnuleysisbóta, vinnumarkaðsaðgerðir og rekstrarerfiðleika fyrirtækja.
Á námskeiðinu verður leitast við að gefa yfirsýn yfir þann hugmyndagrunn sem lög um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir byggja á og framkvæmd laganna. Farið verður yfir og útskýrð ýmis atriði sem gjarnan flækjast fyrir þeim sem þurfa að skrá sig atvinnulausa
...Meira