Frítt yoga fyrir atvinnulausa
Eins og skýrt var frá hér á vefnum fyrir nokkrum dögum hefur Verk-Vest nýlega gert samninga við Stúdíó Dan og Ísafjarðarbæ um ókeypis líkamsrækt fyrir þá sem hafa misst atvinnu sína, svo atvinnuleitendum sé gefinn kostur á að rækta sál og líkama þegar þrengir að. Jafnframt hefur öðrum sveitarfélögum á félagssvæðinu verið sent erindi í þá veru að þau hjálpi til á sama hátt.
Í gær kom á skrifstofu félagsins Martha Ernstsdóttir, sem nýlega setti hér á Ísafirði á stofn yogamiðstöðina Ljósið þitt. Martha vill leggja sitt af mörkum til að aðstoða þá sem hafa orðið fyrir barðinu á kreppunni og býður atvinnulausum upp á ókeypis yogatíma.
Meira