Frá aðalfundi félagsins
Frá aðalfundi félagsins

Ekki bárust önnur framboð til stjórnar og trúnaðarráðs Verkalýðsfélags Vestfirðinga en sú tillaga sem kjörnefnd lagði fram, en framboðsfrestur rann út þann 26. febrúar síðast liðinn. Teljast þeir einstaklingar sem þar voru boðnir fram því réttkjörnir í stjórn og trúnaðarstörf fyrir félagið starfsárin 2009 - 2011.  Samkvæmt 21. grein laga félagsins skal lýsa kjöri sjórnar, varamanna, trúnaðarmannaráðs og skoðunarmanna á aðalfundi félagsins. Hér er hægt að nálgast framboðslista kjörnefndar.    

Frá stofnfundi SEV  25. sept. 2008
Frá stofnfundi SEV 25. sept. 2008

Starfsendurhæfing Vestfjarða tók til starfa 1. janúar síðastliðinn og er starfsemin til húsa í Vestrahúsinu, Árnagötu 2 - 4 á Ísafirði. Starfsendurhæfing Vestfjarða er sjálfseignarstofnun og hefur það að markmiði að veita einstaklingum á Vestfjörðum endurhæfingu til atvinnuþátttöku í heimabyggð og auka þannig lífsgæði þeirra og fjölskyldna þeirra.

...
Meira

Nokkurs misskilnings viðist gæta varðandi samkomulag um frestun kjarasamninga sem ASÍ og SA hafa skrifuðu undir í gær.  Fyrirhugaðar krónutöluhækkanir, kr. 13.500 verkafólk, kr. 17.500 fyrir iðnaðarmenn og 3,5% launaþróunartrygging koma ekki til framkvæmda 1. mars 2009.  Eingöngu er verið að hækka lágmarkstekjutryggingu úr 145.000 í 157.000 fyrir fulla dagvinnu að meðtöldum bónusum og vaktaálagi.

Á fimmta tímanum í gær náðist samkomulag á milli ASÍ og SA um frestun á endurskoðun og framlengingu kjarasamninga. Þetta þýðir að þær launahækkanir sem hefðu átt að koma inn þann 1. mars frestast.  Í samkomulaginu felst að ákvörðun um framlengingu og endurskoðun skal vera lokið eigi síðar en 30. júní á þessu ári. ...
Meira
Í framhaldi af námskeiðum sem félagið hefur staðið fyrir um fjármál heimilanna, þá hefur Verkalýðsfélag Vestfirðinga nú fest kaup á nokkru magni af  bókhaldsforritinu BÓTHILDI. Félagar í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga geta nú fengið forritið BÓTHILDI  sér að kostnaðarlausi á skrifstofu félagsins....
Meira
Vefumsjón