Aftur í nám - opinn kynningarfundur
Laugardaginn 28. febrúar kl. 13:30 verður haldinn í Fræðslumiðstöð Vestfjarða opinn kynningarfundur um námsskrána Aftur í nám. Námið er ætlað fullorðnu fólki sem á við lestrar- og skriftarörðugleika að etja og hefur gefið góða raun víða um land að því leyti að stærstur hluti þeirra sem tekið hafa þátt í því hefur haldið áfram námi, ýmist í símenntunarmiðstöðvunum eða í framhaldsskólum, eins og segir í fréttatilkynningu Fræðslumiðstöðvarinnar.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og fræðast um þetta nám. Þekking á lestrar- og skriftarörðugleikum hefur tekið stórstígum framförum á síðari árum og hér er verið að opna nýjar leiðir fyrir þá sem áður ráku sig á veggi í menntakerfinu.
Meira