Forseti og varaforseti ASÍ við upphaf fundarins.   mynd.  mbl.is
Forseti og varaforseti ASÍ við upphaf fundarins. mynd. mbl.is
Á fundi formanna inna ASÍ sem haldinn var á Grand Hótel í dag voru skiptar skoðanir um hvort rétt væri að óska eftir frestun á endurskoðun kjarasamninga eða ekki. Samhljómur var meðal  landsbyggðarfélaganna sem velflest lögðust gegn því að frestunarleiðin yrði farin.  Skilaboð frá samninganefnd Verkalýðsfélags Vestfirðinga inn á fundin voru skýr, almennt launafólk á Vestfjörðum hefði ekki notið launaskriðs í góðærinu og því væri ósangjarnt að ætla þeim sem undanfarin misseri hefðu eingöngu verið á strýpuðum töxtum að taka á sig enn frekari skerðingar í formi frestunar á endurskoðun kjarasamnings langt fram á sumar....
Meira

Fundur stjórnar og trúnaðarmannaráðs Verk-Vest sem haldinn var þann 27. jan. s.l. samþykkti tillögu kjörnefndar félagsins um þá einstaklinga sem skipa trúnaðarstöður innan félagsins næstu 2 ár. Engar tillögur komu fram um breytingar á listanum. Listinn er birtur hér.


Frestur til að bjóða fram annan lista eða tillögur um einstök stjórnarsæti sem kjósa skal um er 14 sólarhringar frá deginum í dag (12. febrúar 2009).

...
Meira
Farið yfir nýgerðan kjarasamning á vinnustað. Stéttarfélagsþátttaka er 85% á Íslandi.
Farið yfir nýgerðan kjarasamning á vinnustað. Stéttarfélagsþátttaka er 85% á Íslandi.
Í frétt á vef ASÍ 11. þ.m. er skýrt frá því að ný rannsókn á evrópskum vinnumarkaði sýni að stéttarfélög hafi mikil áhrif á hvort vinnuaðstæður starfsmanna séu góðar eða ekki. Ráðherranefnd Evrópusambandsins, sem lét gera skýrsluna, segir það ekki fara á milli mála að sterk stéttarfélög stuðli að góðum og heilbrigðum vinnumarkaði. Misrétti og undirboð eru mun fátíðari þar sem stéttarfélög eru sterk en þar sem þau eru veik og sömuleiðis eru öryggis- og heilbrigðismál á vinnustöðum í betra horfi eftir því sem verkalýðshreyfingin er öflugri. Þá kemur fram í fréttinni að þátttaka í stéttarfélögum er meiri á Íslandi en annarsstaðar...
Meira

Kynningarfundur hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, að Suðurgötu 12 á Ísafirði, fimmtudaginn 12. febrúar 2009, kl. 20.


IÐAN - fræðslusetur hefur hrundið af stað verkefni sem miðar að því að aðstoða fólk á norðanverðum Vestfjörðum, sem starfar við iðngreinar án fagréttinda, að ljúka sveinsprófi. Verkefnið er unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Menntaskólann á Ísafirði og Fræðslumiðstöð Vestfjarða og gengur undir vinnuheitinu Bættu um betur. Hluti af verkefninu er að gefa fólki kost á að gangast undir svokallað raunfærnimat, þar sem það fær færni sína og kunnáttu metna uppí fagáfanga í iðnnámi. Að auki fær fólk fyrra nám metið, samkvæmt almennum reglum þar um, en þarf svo að ljúka því námi sem uppá vantar. Að því loknu getur viðkomandi gengist undir sveinspróf.

...
Meira

Reglugerð fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um hvalveiðar er mjög umdeild. Ferðaþjónustuaðilar, einkum þeir sem starfa við hvalaskoðun, eru uggandi um sinn hag. Þeir telja veiðarnar skaða ímynd Íslands sem ferðamannalands, sérstaklega hvað hvalaskoðun varðar. Þeir sem sjá fram á vinnu við veiðar og vinnslu á sínu svæði blása á slíkar áhyggjur og telja enga hættu á að ferðaþjónusta bíði skaða af. Aftur á móti muni verða til 300 ný störf vegna veiðanna og ekki sé hægt að hafna þeim í kreppunni.
Málið var rætt á formannafundi Starfsgreinasambands Íslands í gær.


Eftirfarandi ályktun var samþykkt

...
Meira
Vefumsjón