ljósm. Ragnar F. Valsson
ljósm. Ragnar F. Valsson
Formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga fer yfir það í pistli hér á síðunni að ráð- og stefnuleysi megi ekki ráða för þrátt fyrir að mikið gangi á í pólitíkinni. Leita verði leiða til að örva hagkerfið og skapa atvinnumöguleika með því að boða til sóknar í framkvæmdum á vegum ríkis og sveitafélaga. Þegar pistillinn var skrifaður hékk líf ríkisstjórnarinnar á bláþræði, sá þráður reyndist svo veikur að nú hefur hann slitnað og hefur verið bundinn endi á líf ríkisstjórnarinnar. 

Almenningur hefur ítrekað kallað eftir stefnu og aðgerðum ríkisstjórnarinnar í atvinnu- og efnahagsmálum en lítið hefur sést á spil þeirra sem halda um stjórnartaumana er varðar skýra stefnu um aðgerðir.      

..."Það eru engar ýkjur að segja að þátttöku ríkisins í þessum viðræðum hafi sárlega vantað, og taka þannig undir með ályktun Kennarasambands Íslands frá 22. janúar sl. Enda hafa bæði samtök launþega og vinnuveitanda reynt að koma auga á stefnu og sýn ríkisstjórnarinnar í þessum viðræðum án árangurs. Þar er einnig hvatt til að samstaða launþega og samtaka þeirra haldi áfram á þessum erfiðu tímum. Öllum ætti að vera ljóst að það er samtakamáttur og ekkert annað sem mun skila launþegum árangri í viðræðum við vinnuveitendur. Baklandið þarf að þjappa sér saman og styðja við forustuna jafnframt því að veita henni nauðsynlegt aðhald með gagnvirkri umræðu um kjaramálin."  Enn fremur segir í niðurlagi pistilsins ..."Almenningur hefur kallað eftir stefnu og aðgerðum ríkisstjórnarinnar í atvinnu- og efnahagsmálum. Það eitt að hafa örvun atvinnulífsins og hag heimilanna að leiðarljósi gæti skilað ríkisstjórninni nokkuð áleiðis í þessari baráttu.  Þessi örvun myndi einnig skila tekjum í ríkissjóð, en aðgerðarleysi og botnfrosið atvinnulíf gerir það sannarlega ekki."  Lesa má pistilinn hér í heild sinni.        
"Reiði almennings gagnvart stefnulausri ríkisstjórn stigmagnast dag frá degi. Stöðugt bætast nýjar upplýsingar í sarpinn um að stjórnvöld vissu eða máttu vita hvert stefndi með ofvöxnu blöðrubankana, en aðhöfðust ekki, létu reka á reiðanum" segir framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands í pistli sem birtist á vef sambandsins í dag.
"Viðræður um endurnýjun kjarasamninga milli aðila vinnumarkaðarins eru hafnar. Að þeim viðræðum verður ríkisvaldið að koma. Það er hins vegar vandséð hvernig ríkisstjórn sem rúin er trausti almennings geti komið að kjaraviðræðum, svo mark sé á takandi" segir framkvæmdastjórinn í pistlinum, sem fer hér á eftir. Þetta er vond staða og ráðherrar þegja þunnu hljóði....
Meira

Eins og kunnugt er náði góðæri undanfarinna ára ekki til Vestfjarða. Afleiðingar efnahagshrunsins koma því seinna og vonandi í minni mæli niður á Vestfirðingum en íbúum þenslusvæðanna. Reyndar má segja að við höfum tekið út hrunið fyrirfram með fólksfækkun og neikvæðum hagvexti undanfarin ár. Ekki er þó ástæða til að ætla að við sleppum alveg, t.d. eru í dag 82 einstaklingar á atvinnuleysisskrá á Vestfjörðum, en voru 24 í janúar í fyrra. Þetta eru að vísu ekki háar tölur miðað við ótíðindi frá suðvesturhorninu, en gefa þó vísbendingu um að atvinnuleysi fari vaxandi hjá okkur.


Nú hefur félags- og tryggingamálaráðherra sett reglugerð um fjölbreytt vinnumarkaðsúrræði sem atvinnuleitendur geta tekið þátt í samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur, svo sem þátttöku í sérstökum átaksverkefnum, frumkvöðlastörfum og sjálfboðaliðastörfum. Enn fremur fjallar reglugerðin um styrki til náms og námskeiða, búferlastyrki, atvinnutengda endurhæfingu og fleira. Einnig hefur verið sett reglugerð um nám og námskeið sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði.

...
Meira
Varla verður fjallað um svona snúin verkefni á námskeiðinu, en dettur einhverjum í hug fjármálamarkaður?
Varla verður fjallað um svona snúin verkefni á námskeiðinu, en dettur einhverjum í hug fjármálamarkaður?

Þann 30. janúar n.k. hefst í Baldurshúsinu Pólgötu 2 námskeið sem Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Iðan fræðslusetur standa fyrir. Það er ætlað smiðum og viðfangsefnið er viðgerðir og viðhald húsa.


Á námskeiðinu verður fjallað um viðhaldsmarkaðinn eins og hann er í dag. Farið yfir málmtæringar og tæringavarnir. Kynntar mismunandi gerðir útveggja og þaka. Fjallað verður um verndun timburs og steins og farið yfir viðhald og endurnýjun timbur- og steinveggja, gluggaviðgerðir og endurbætur eldri glugga. Kennarar verða Jón Sigurjónsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Björn Marteinsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

...
Meira
Félagsmenn! Nýtið þetta tækifæri.
Félagsmenn! Nýtið þetta tækifæri.

Fréttatilkynning frá Fræðslumiðstöð Vestfjarða.

Fimmtudaginn 22. janúar n.k. kl 20:00 stendur Fræðslumiðstöð Vestfjarða fyrir opnum kynningarfundi um raunfærnimat. Fundurinn er ætlaður öllum þeim sem starfa við iðngreinar en hafa ekki lokið sveinsprófi. Vinnuveitendur eru einnig hvattir til að mæta og kynna sér málið.

Raunfærnimat er aðferð fyrir þá sem komnir eru út á vinnumarkað til að fá færni sína, þekkingu og menntun metna til eininga í formlegu námi.
Að loknu raunfærnimati liggur fyrir hvað einstaklingurinn þarf að ljúka mörgum einingum eða áföngum til að ná ákveðnum áfanga, t.d. sveinsprófi.

Raunfærnimat er ætlað þeim sem eru 25 ára og eldri, hafa unnið við iðngrein í að minnsta kosti 5 ár en hafa af einhverjum ástæðum ekki lokið námi í greininni.  Búið er að þróa raunfærnimat í allmörgum iðngreinum en ekki öllum.

Á fundinum mun Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi Fræðslumiðtöðvar Vestfjarða kynna matið, hvernig það fer fram, hvaða greinar það nær yfir og hvað tekur við að matinu loknu.  Einnig verða fulltrúar frá Menntaskólanum á Ísafirði á staðnum, en Fræðslumiðstöðin og Menntaskólinn hafa með sér nána samvinnu við raunfærnimat.

Vefumsjón