Það hefur varla farið fram hjá neinum sem kominn er til vits og ára, að gjaldtaka af sjúklingum hækkaði verulega um áramótin, m.a. var tekið upp sérstakt gjald sem fólk þarf að greiða fyrir að vera lagt inn á sjúkrahús. Miðstjórn ASÍ hefur sent frá sér ályktun þar sem þessum hækkunum er mótmælt og hagdeild sambandsins hefur unnið afar fróðlega samantekt um breytingar á gjaldtöku hjá ríkinu um áramótin. Í ályktun miðstjórnar ASÍ er m.a. bent á að þessar hækkanir, eins og aðrar, hafa áhrif þegar verðbólga er mæld og virka þannig til hækkunar á verðtryggðum skuldum heimilanna í landinu. Þannig verður ógæfu íslenskrar alþýðu allt að vopni í upphafi ársins 2009.
...Meira