Farið yfir nýgerðan kjarasamning á vinnustað. Stéttarfélagsþátttaka er 85% á Íslandi.
Farið yfir nýgerðan kjarasamning á vinnustað. Stéttarfélagsþátttaka er 85% á Íslandi.
Í frétt á vef ASÍ 11. þ.m. er skýrt frá því að ný rannsókn á evrópskum vinnumarkaði sýni að stéttarfélög hafi mikil áhrif á hvort vinnuaðstæður starfsmanna séu góðar eða ekki. Ráðherranefnd Evrópusambandsins, sem lét gera skýrsluna, segir það ekki fara á milli mála að sterk stéttarfélög stuðli að góðum og heilbrigðum vinnumarkaði. Misrétti og undirboð eru mun fátíðari þar sem stéttarfélög eru sterk en þar sem þau eru veik og sömuleiðis eru öryggis- og heilbrigðismál á vinnustöðum í betra horfi eftir því sem verkalýðshreyfingin er öflugri. Þá kemur fram í fréttinni að þátttaka í stéttarfélögum er meiri á Íslandi en annarsstaðar...
Meira

Kynningarfundur hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, að Suðurgötu 12 á Ísafirði, fimmtudaginn 12. febrúar 2009, kl. 20.


IÐAN - fræðslusetur hefur hrundið af stað verkefni sem miðar að því að aðstoða fólk á norðanverðum Vestfjörðum, sem starfar við iðngreinar án fagréttinda, að ljúka sveinsprófi. Verkefnið er unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Menntaskólann á Ísafirði og Fræðslumiðstöð Vestfjarða og gengur undir vinnuheitinu Bættu um betur. Hluti af verkefninu er að gefa fólki kost á að gangast undir svokallað raunfærnimat, þar sem það fær færni sína og kunnáttu metna uppí fagáfanga í iðnnámi. Að auki fær fólk fyrra nám metið, samkvæmt almennum reglum þar um, en þarf svo að ljúka því námi sem uppá vantar. Að því loknu getur viðkomandi gengist undir sveinspróf.

...
Meira

Reglugerð fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um hvalveiðar er mjög umdeild. Ferðaþjónustuaðilar, einkum þeir sem starfa við hvalaskoðun, eru uggandi um sinn hag. Þeir telja veiðarnar skaða ímynd Íslands sem ferðamannalands, sérstaklega hvað hvalaskoðun varðar. Þeir sem sjá fram á vinnu við veiðar og vinnslu á sínu svæði blása á slíkar áhyggjur og telja enga hættu á að ferðaþjónusta bíði skaða af. Aftur á móti muni verða til 300 ný störf vegna veiðanna og ekki sé hægt að hafna þeim í kreppunni.
Málið var rætt á formannafundi Starfsgreinasambands Íslands í gær.


Eftirfarandi ályktun var samþykkt

...
Meira
Frá viku símenntunar
Frá viku símenntunar

Frá og með 1. janúar voru teknar upp breytingar við greiðslu fræðslustyrkja hjá Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt. Nú verða styrkir afgreiddir um leið og viðkomandi kemur með kvittun vegna greiðslu á námi/námskeiði. Hingað til hafa styrkir ekki verið afgreiddir fyrr en að námi/námskeiði loknu. Þetta er gert til að koma betur á móts við þarfir markhóps sjóðanna. Sérstaklega þegar kreppir að og atvinnuleysi gerir vart við sig í meira mæli en verið hefur. Þá getur þetta einnig reynst hvatning til náms fyrir ungt fólk sem hætt hefur námi á ákveðnum tíma og langar síðan að reyna fyrir sér á ný - hættir að vinna og byrjar í námi.

...
Meira
Tæringavarnirnar teknar föstum tökum
Tæringavarnirnar teknar föstum tökum
« 1 af 2 »

Dagana 30 - 31. janúar var haldið námskeið í viðhaldi og viðgerðir húsa á vegum Verkalýðsfélags Vestfirðinga og Iðunnar fræðaseturs. Kennarar á námskeiðinu voru þeir Jón Sigurjónsson og Björn Marteinsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Það var mál þátttakanda að námskeiðið hefði verið gagnlegt og myndi nýtast vel sérstaklega ef endurgreiðsla virðisaukaskatts af endurbótum yrði að veruleika. Einnig höfðu reyndari þátttakendurnir orð á því að margt fróðlegt hefði komið þar fram, því á gamla máltækið "svo lengi lærir sem lifir". Á laugardeginum var síðan farið í vettvangsferð til Bolungavíkur og framkvæmdir við Félagsheimili Bolungavíkur skoðaðar.

Vefumsjón