Samningar félagsins
Verkalýðsfélag Vestfirðinga á aðild að kjarasamningum fyrir landverkafólk, verslunar- og skrifstofufólk, sjómenn, byggingamenn, vélstjóra í frystihúsum og verksmiðjum, starfsfólk á veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustöðum, starfsfólk sveitarfélaga, ríkis, t.d. starfsstúlkur á heilbrigðisstofnunum og starfsmenn vegagerðarinnar. Þá hefur félagið gert séstakan samning um kjör starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, auk samninga við einstök fyrirtæki um afmarkaða þætti s.s. vaktavinnu.
Hægt er að skoða tiltæka kjarasamninga með því að smella á Kjarasamningar hér til vinstri og síðan á viðeigandi tengla, kaupgjaldsskrár sömuleiðis. Hvort tveggja er hægt að prenta út eða vista í tölvunni hjá sér.
Nokkrir gagnlegir punktar sem vert er að hafa í huga.
- Geymdu launaseðla.
- Með þeim getur þú sannað réttindi þín.
- Á launaseðlum kemur fram, hvaða kaup þú hefur, hvaða orlofsfé þú átt og hvað hefur verið dregið af þér í skatta, lífeyrissjóð og félagsgjöld.
- Kjarasamningur stéttarfélagsins tryggir þér lágmarksrétt.
- Allir nýjir starfsmenn eiga að gera skriflegan ráðningarsamning. Fyrir félagsgjaldið færðu þjónustu frá stéttarfélaginu.
- Þú öðlast rétt til sjúkralauna frá stéttarfélaginu samkvæmt reglum þess.
- Þú öðlast rétt til að nota orlofshús stéttarfélagsins samkvæmt reglum þess.
- Þú öðlast rétt til að sækja námskeið á vegum stéttarfélagsins samkvæmt reglum þess.
- Þú getur tekið þátt í félagslífi hjá stéttarfélaginu.
- Í flestum tilfellum þarf að sækja skriflega um aðild að stéttarfélagi.
- Jafnaðarkaup er ekki til í kjarasamningum. Verktakar njóta ekki sama réttar og launafólk.
- Vönduð vinnubrögð leggja grunnin að farsælum starfsferli.
- Aukin menntun leiðir til meiri hæfni, atvinnuöryggis, hærri launa og lífsánægju.