Orlofssjóður Verk-Vest

Verkalýðsfélag Vestfirðinga býður félagsmönnum fjölbreytta valkosti í orlofsdvalarstöðum víðs vegar um landið:

 

Staðsetning svæðanna sést á kortinu hér til hliðar. Frekari upplýsingar um húsin og íbúðirnar, s.s. stærð, búnað, umhverfi, leiguskilmála o.fl. fást með því að smella á viðeigandi tengil hér fyrir neðan.

 

Meginatriði sem hafa þarf í huga:

  • Skrifstofa félagsins sér um úthlutun og leigu nema um annað sé getið í umfjöllun um einstök orlofssvæði. (Vinstri dálkur)
  • Ekki er hægt að panta orlofshús eða íbúðir með lengri fyrirvara en sem svarar 3 mánuðum. Sérstakar reglur eiga þó við um sumarúthlutun.
  • Lykla þarf að vitja á tilsettum tíma. Ef leigutaki tefst er bráðnauðsynlegt að láta umsjónarmann vita. Að öðrum kosti geta orðið vandræði með afhendingu lykla.
  • Bannað er að framselja leigusamninga. Leigutaki ber ábyrgð á húsinu/íbúðinni og öllu sem því fylgir. Það getur því orðið dýrt spaug að framselja öðrum leigusamning.
  • Allt húsdýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest að viðlögðum tafarlausum brottrekstri.
  • Leigutaki gengur vel um, þrífur eftir sig og skilar húsinu/íbúðinni og öllum búnaði hreinu og tilbúnu fyrir næsta leigjanda. Vanhöld á þessu geta orðið til þess að þrifið verði á kostnað síðasta leigutaka.
  • Framsal á leigusamningi eða alvarleg brot á öðrum reglum eða skyldum sem leigutakar gangast undir með leigusamningi geta valdið því að félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis.

Félagið greiðir einnig götu félagsmanna í sumarleyfinu með afsláttarkjörum hjá Eddu- og Fosshótelum, á tjaldstæðum vítt og breitt um landið og veiðikorti sem veitir aðgang að meira en 35 vatnasvæðum.

Sjá flipann Afsláttarkort til vinstri.

Vefumsjón