Eddu- og Fosshótel, útilegukort og veiðikort
2ja manna herbergi á kr. 7.950 fyrir félagsmenn Verk Vest.
Skrifstofa Verkalýðsfélags Vestfirðinga er með til sölu greiðslumiða Edduhótelana. Hver miði gildir fyrir tvo í gistingu, í tveggja manna herbergi með handlaug, í eina nótt. Leyfilegt er að taka með sér börn í herbergið án þess að greiða aukalega ef fólk hefur með sér svefnpoka eða rúmföt. Hótel Edda útvegar dýnu án endurgjalds.
Edduhótelin eru alls 13 hringinn í kring um landið.
Nánari upplýsingar á hoteledda.is
Fosshótel
Skrifstofa Verkvest er með gistimiða Fosshótelanna fyrir félagsmenn. Fosshótelin sem starfrækt eru allt árið eru 5 talsins og alls 9 yfir sumartímann. Gisting fyrir tvo í 2ja manna herbergi m/sér baði og morgunverði kr. 8.000-
Aukagjald greiðist í gestamóttöku kr. 5.000 í júní í Skaftafelli, Barón og Lind.
Í júlí og ágúst skal greiða með 2 gistimiðum fyrir eina nótt á öllum Fosshótelum.
Nánar upplýsingar á fosshotel.is
Útilegukortið
Eins og á síðasta ári hefur Verk Vest útilegukortið til sölu fyrir félagsmenn sína. Útilegukortið 2011 kostar 13.900 en félagsmenn Verk Vest fá kortið á 9.900. Kortið gefur félagsmönnum kost á að ferðast um Ísland á ódýran og hagkvæman hátt með gistingu á sérvöldum tjaldsvæðum um land allt. Útilegukortið gildir á u.þ.b. 40 tjaldstæðum
á landinu og veitir tveimur fullorðnum og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á
tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins.
Nánari uppslýsingar eru á:
http://www.utilegukortid.is/
Veiðikortið
Skrifstofa Verk Vest hefur veiðikortið til sölu fyrir félagsmenn. Veiðikortið 2011 veitir nær ótakmarkaðan aðgang að 35 vatnasvæðum vítt og breitt um landið.
Kortið kostar 6.000 kr. en félagsmenn Verk Vest fá kortið á 4.800.
Glæsileg handbók fylgir hverju seldu korti þar sem má finna leiðbeiningar og reglur.
Kortið gildir fyrir einn fullorðinn. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd korthafa.
Nánari upplýsingar á: http://www.veidikortid.is/