Flókalundur í Vatnsfirði

Félagið á 6 hús í orlofsbyggðinni í Flókalundi á Barðaströnd.
Svæðið er rómað fyrir náttúrufegurð og gróðursæld og berjaspretta er þar mikil. Stutt er frá Flókalundi til Látrabjargs, Rauðasands, Ketildala og Dynjanda svo nokkrir séu nefndir af áhugaverðum stöðum í grenndinni.
Til Ísafjarðar er innan við tveggja tíma akstur og styttra til t.d. Patreksfjarðar, Bíldudals og Tálknafjarðar. Má því segja að meginhluti Vestfjarða sé innan seilingar. Skemmtilegur möguleiki er að taka Breiðafjarðarferjuna frá Brjánslæk til Flateyjar og skoða þessa sögufrægu eyju. Ferjan gengur milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey tvisvar á dag yfir sumarið.

Sundlaug er í byggðinni.

Sundlaugin var byggð 1994. Hún er 6x12 metrar að stærð og öll jafn djúp, 90 cm. Við laugina er heitur pottur og krakkapottur.

 

Húsin og búnaður

Húsin eru 40 m2. Í þeim eru 2 svefnherbergi, setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Húsunum fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni og salernispappír. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað, handklæði, borðklúta og þurrkustykki. Í öllum húsunum er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og útigrill. Barnarúm og stólar og aukadýnur fást hjá umsjónarmanni, sem er staðsettur í húsi við sundlaug. Við Hótel Flókalund, sem er steinsnar frá byggðinni, er verslun með brýnustu nauðsynjar.

 

Leiguskilmálar

Orlofshúsin eru leigð viku í senn að sumrinu, frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma milli kl. 14:00 og 21:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 15.000. Helgarleiga, þegar um hana er að ræða, er kr. 10.000. Lyklar fást hjá umsjónarmanni gegn framvísun leigusamnings. Leigutaki verður að vitja lykla á auglýstum tíma. Ef það dregst er nauðsynlegt að láta umsjónarmann vita. Að öðrum kosti er ekki tryggt að lyklar fáist afhentir við komu. Umsjónarmaður er Gunnar Karl Garðarsson s. 456 2044.

 

Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum hús sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofshúsa.

 

Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.

 

Umgengni.

  • Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
  • Gangið þrifalega um húsið og umhverfi þess. Minnist þess að gróður í nágrenni orlofshúsanna er viðkvæmur og óvarleg umgengni getur valdið varanlegum skaða.
  • Bílaumferð að húsunum er stranglega bönnuð. Notið bílastæðin.
  • Opinn eldur krefst varúðar, hvort sem er grill eða kertaljós. Bannað er að kveikja eld og einnota grill sem liggja á palli eða jörðinni eru algerlega bönnuð. Eldsvoðar hafa hlotist af þeim.
  • Tökum tillit hvert til annars. Öll háreysti, bílaumferð og óþarfa umgengni er bönnuð í orlofsbyggðinni milli kl. 23:00 og 09:00.
  • Við brottför skal ræsta húsið vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér þar sem við á. Lyklum skal skila til umsjónarmanns.
  • Umsjónarmaður fer yfir húsin eftir hverja dvalargesti og gætir þess að ekki vanti hreinsiefni eða annað sem byggðin leggur til. Hann kannar einnig ástand húsanna og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
  • Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við húsið eins og við viljum taka við því.
Ef eitthvað vantar í húsin eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast látið umsjónarmann vita. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.

Svignaskarð í Borgarfirði

Félagið á 2 orlofsbústaði í Svignaskarði.

Orlofsbyggðin í Svignaskarði er vel í sveit sett. Ferðaþjónusta er á háu stigi í Borgarfirði og þar eru margar náttúruperlur, s.s. fossinn Glanni í Norðurá og Paradísarlaut. Í Borgarfirði og á Mýrum eru söguslóðir Egils Skallagrímssonar og Sturlungu og sagan er þarna við hvert fótmál. Stutt er í fjölbreytta þjónustu og verslanir í Borgarnesi og ekki er tiltökumál að bregða sér til Akraness eða Reykjavíkur.

Þá er rómuð náttúrufegurð Snæfellsness og dularmögn Snæfellsjökuls á næstu grösum.

Góð þjónustumiðstöð er við byggðina, þar sem aðgangur er að böðum og gufubaði. Vel er séð fyrir afþreyingu, tveir sparkvellir, leiktæki fyrir börnin og minigolf. Stutt er í afbragðsgóðar sundlaugar í Borgarnesi og Varmalandi. Margar góðar gönguleiðir liggja frá byggðinni.

 

Húsin í Svignaskarði eru leigð allan ársins hring.

Svignaskarð er í alfaraleið og þangað er greið leið allt árið. Vetrarleiga er því vinsæl og vaxandi.

 

Húsin og búnaður

Særra húsið er 72 mermetrar með 3 svefnherbergjum með gistirými fyrir 7. Minna húsið er 40 fermetrar með 1 hjónaherbergi og minna herbergi með koju. Gistirými er fyrir 5 í minna húsinu. Þá eru einnig ungbarnarúm í báðum húsunum. Í báðum húsunum eru setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Húsunum fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni og salernispappír. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað, handklæði, borðklúta og þurrkustykki. Í húsunum er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og útigrill. Barnarúm og stólar fást hjá umsjónarmanni í þjónustumiðstöð. Heitur pottur er við bæði húsin.

 

Leiguskilmálar

Orlofshúsin eru leigð viku í senn að sumrinu, frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma milli kl. 14:00 og 22:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 16.000 fyrir hús nr. 9 og kr. 17.000 fyrir hús nr. 30. Helgarleiga, þegar um hana er að ræða, er kr. 11.000 fyrir hús nr. 9 og kr. 12.000 fyrir hús nr. 30. Lyklar fást hjá umsjónarmanni gegn framvísun leigusamnings. Leigutaki verður að vitja lykla á auglýstum tíma. Ef það dregst er nauðsynlegt að láta umsjónarmann vita. Að öðrum kosti er ekki tryggt að lyklar fáist afhentir við komu. Umsjónarmaður er Einar Björnsson s. 437 1767 - GSM 893 1767.

 

Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum hús sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofshúsa.

 

Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.

 

Umgengni.

  • Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
  • Gangið þrifalega um húsið og umhverfi þess. Minnist þess að gróður í nágrenni orlofshúsanna er viðkvæmur og óvarleg umgengni getur valdið varanlegum skaða.
  • Opinn eldur krefst varúðar, hvort sem er grill eða kertaljós. Bannað er að kveikja eld og einnota grill sem liggja á palli eða jörðinni eru algerlega bönnuð. Eldsvoðar hafa hlotist af þeim.
  • Tökum tillit hvert til annars. Öll háreysti, bílaumferð og og óþarfa umgengni er bönnuð í orlofsbyggðinni milli kl. 23:00 og 09:00.
  • Við brottför skal ræsta húsið vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Þrífa heita pottinn og ganga frá honum. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér þar sem við á. Lyklum skal skila til umsjónarmanns.
  • Umsjónarmaður fer yfir húsin eftir hverja dvalargesti og gætir þess að ekki vanti hreinsiefni eða annað sem byggðin leggur til. Hann kannar einnig ástand húsanna og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
  • Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við húsið eins og við viljum taka við því.

 

Ef eitthvað vantar í húsin eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast látið umsjónarmann vita. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.

Ölfusborgir við Hveragerði

Verk-Vest á 1 hús í Ölfusborgum við Hveragerði, og helmings hlut í öðru á móti Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur.

Blómabærinn Hveragerði er stutt frá byggðinni. Staðurinn er þekktur fyrir ylrækt og gróðurhús. Þar er margskonar þjónusta í boði, sundlaug með vatnsrennibraut og auðvitað blómaverslanir. Umhverfis Hveragerði er mikil náttúrfegurð og þar eru margar skemmtilegar gönguleiðir. Stutt er að aka til Selfoss og fleiri þéttbýlisstaðir á Suðurlandi eru innan seilingar, svo og merkir staðir eins og t.d. Gullfoss, Geysir, Skálholt og Þingvellir.
Á svæðinu er sparkvöllur, körfuboltavöllur og leikaðstaða fyrir börnin. Einnig er þar púttvöllur.

 

Hús og búnaður
Í húsunum eru 3 svefnherbergi, stofa-borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Stór verönd með heitum potti og sólskála er við bæði húsin. Húsunum fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni, salernispappír og gólfklútar og borðtuskur. Tuskum og klútum skal skilað að lokinni dvöl. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað og handklæði. Í húsunum er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og útigrill. Barnarúm og stólar fást hjá umsjónarmanni í þjónustumiðstöð.

 

Leiguskilmálar

Orlofshúsin eru leigð viku í senn að sumrinu, frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma milli kl. 15:00 og 21:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 16.000. Helgarleiga, þegar um hana er að ræða, er kr. 11.000. Lyklar fást hjá umsjónarmanni gegn framvísun leigusamnings. Leigutaki verður að vitja lykla á auglýstum tíma. Ef það dregst er nauðsynlegt að láta umsjónarmann vita. Að öðrum kosti er ekki tryggt að lyklar fáist afhentir við komu. Skrifstofa félagsins annast útleigu á sumrin, en rekstrarfélagið á staðnum að vetrinum frá miðjum september, og er þá pantað hjá þeim í síma 483-4260, mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga milli kl.13:30-16:00.

Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldu sinni hús sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofshúsa.

 

Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.

 

Umgengni.

  • Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
  • Gangið þrifalega um húsið og umhverfi þess. Minnist þess að gróður í nágrenni orlofshúsanna er viðkvæmur og óvarleg umgengni getur valdið varanlegum skaða.
  • Opinn eldur krefst varúðar, hvort sem er grill eða kertaljós. Bannað er að kveikja eld og einnota grill sem liggja á palli eða jörðinni eru algerlega bönnuð. Eldsvoðar hafa hlotist af þeim.
  • Tökum tillit hvert til annars. Öll háreysti, bílaumferð og og óþarfa umgengni er bönnuð í orlofsbyggðinni milli kl. 23:00 og 09:00.
  • Við brottför skal ræsta húsið vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Þrífa heita pottinn og ganga frá honum. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér þar sem við á. Lyklum skal skila til umsjónarmanns.
  • Umsjónarmaður fer yfir húsin eftir hverja dvalargesti og gætir þess að ekki vanti hreinsiefni eða annað sem byggðin leggur til. Hann kannar einnig ástand húsanna og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
  • Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við húsið eins og við viljum taka við því.

 

Ef eitthvað vantar í húsin eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast látið umsjónarmann vita. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.

Illugastaðir í Fnjóskadal

Verk-Vest á helming í orlofshúsi á Illugastöðum á móti Verkalýðsfélaginu Stjörnunni í Grundarfirði.

Illugastaðir eru u.þ.b. 50 km. frá Akureyri. Í Fnjóskadal er náttúrufegurð mikil og þar er hinn víðáttumikli Vaglaskógur. Svæðið er því vel fallið til gönguferða og náttúruskoðunar, hvort sem er að sumri eða vetri. Frá Illugastöðum er 1 klst. akstur til Húsavíkur og álíka langt til náttúruperlunnar Mývatns.

 

Sundlaug er á Illugastöðum, heitur pottur og gufubað. Í þjónustumiðstöð er lítil verslun með helstu nauðsynjavörur. Á svæðinu er leikvöllur með skemmtilegum leiktækjum fyrir börnin. Örstutt er yfir í Vaglaskóg þar sem eru ótal skemmtilegar gönguleiðir.

 

Hús og búnaður

Húsið er 45 m2. Í því eru 2 svefnherbergi, setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Húsinu fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni og salernispappír. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað, handklæði, borðklúta og þurrkustykki. Í húsinu er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og útigrill. Barnarúm og stólar og aukadýnur fást hjá umsjónarmanni í þjónustumiðstöð.

 

Leiguskilmálar

Orlofshúsið er leigt viku í senn að sumrinu, frá föstudegi til föstudags. Húsið er einnig leigt að vetrinum. Leigutakar koma milli kl. 14:00 og 21:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 16.000. Helgarleiga, þegar um hana er að ræða, er kr. 11.000. Skrifstofa félagsins annast úthlutun og útleigu að sumrinu, en umsjónarmaður að vetrinum. Lyklar fást hjá umsjónarmanni gegn framvísun leigusamnings. Leigutaki verður að vitja lykla á auglýstum tíma. Ef það dregst er nauðsynlegt að láta umsjónarmann vita. Að öðrum kosti er ekki tryggt að lyklar fáist afhentir við komu. Sími hjá umsjónarmanni er 462 6199.

 

Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum hús sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofshúsa.

 

Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.

 

Umgengni.

  • Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
  • Gangið þrifalega um húsið og umhverfi þess. Minnist þess að gróður í nágrenni orlofshúsanna er viðkvæmur og óvarleg umgengni getur valdið varanlegum skaða.
  • Bílaumferð að húsunum er stranglega bönnuð. Notið bílastæðin.
  • Opinn eldur krefst varúðar, hvort sem er grill eða kertaljós. Bannað er að kveikja eld og einnota grill sem liggja á palli eða jörðinni eru algerlega bönnuð. Eldsvoðar hafa hlotist af þeim.
  • Tökum tillit hvert til annars. Öll háreysti, bílaumferð og óþarfa umgengni er bönnuð í orlofsbyggðinni milli kl. 23:00 og 09:00.
  • Við brottför skal ræsta húsið vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér þar sem við á. Lyklum skal skila til umsjónarmanns.
  • Umsjónarmaður fer yfir húsin eftir hverja dvalargesti og gætir þess að ekki vanti hreinsiefni eða annað sem byggðin leggur til. Hann kannar einnig ástand húsanna og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
  • Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við húsið eins og við viljum taka við því.

 

Ef eitthvað vantar í húsin eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast látið umsjónarmann vita. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.

Einarsstaðir á Héraði

Verk-Vest á 1 orlofshús á Einarsstöðum og til viðbótar 1/2 hús á móti Verkalýðsfélagi Húsavíkur.

Orlofsdvöl á Einarsstöðum hefur verið mjög eftirsótt síðustu ár, ekki síst vegna mikillar veðursældar á Austurlandi. Einarsstaðir eru í jaðri Eyjólfsstaðaskógar og miðja vegu milli Egilsstaða og Hallormsstaða. Segja má að þaðan sé stutt til allra staða á Austurlandi og upplagt að fara í dagsferðir um nánast alla Austfirði. Stutt er í margvíslega þjónustu og afþreyingu á Egilsstöðum sem eru í 12 km. fjarlægð. Þar eru m.a. margvíslegar verslanir og afbragðsgóð sundlaug. Lagarfljót er svo að segja við bæjardyrnar.

 

Hús og búnaður

Húsin eru 45 m2. Í þeim eru 2 svefnherbergi, setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Húsunum fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni og salernispappír. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað, handklæði, borðklúta og þurrkustykki. Í húsunum er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og útigrill. Barnarúm og stólar og aukadýnur fást hjá umsjónarmanni, sem er staðsettur í húsi nr. 32.

 

Leiguskilmálar

Orlofshúsin eru leigð viku í senn að sumrinu, frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma milli kl. 14:00 og 21:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 15.000. Helgarleiga, þegar um hana er að ræða, er kr. 10.000. Lyklar fást hjá umsjónarmanni gegn framvísun leigusamnings. Leigutaki verður að vitja lykla á auglýstum tíma. Ef það dregst er nauðsynlegt að láta umsjónarmann vita. Að öðrum kosti er ekki tryggt að lyklar fáist afhentir við komu. Umsjónarmaður er Guðni Þ. Hermannsson s. 861 8310.

 

Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum hús sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofshúsa.

 

Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.

 

Umgengni.

  • Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
  • Gangið þrifalega um húsið og umhverfi þess. Minnist þess að gróður í nágrenni orlofshúsanna er viðkvæmur og óvarleg umgengni getur valdið varanlegum skaða.
  • Bílaumferð að húsunum er stranglega bönnuð. Notið bílastæðin.
  • Opinn eldur krefst varúðar, hvort sem er grill eða kertaljós. Bannað er að kveikja eld og einnota grill sem liggja á palli eða jörðinni eru algerlega bönnuð. Eldsvoðar hafa hlotist af þeim.
  • Tökum tillit hvert til annars. Öll háreysti, bílaumferð og óþarfa umgengni er bönnuð í orlofsbyggðinni milli kl. 23:00 og 09:00.
  • Við brottför skal ræsta húsið vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér þar sem við á. Lyklum skal skila til umsjónarmanns.
  • Umsjónarmaður fer yfir húsin eftir hverja dvalargesti og gætir þess að ekki vanti hreinsiefni eða annað sem byggðin leggur til. Hann kannar einnig ástand húsanna og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
  • Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við húsið eins og við viljum taka við því.

 

Ef eitthvað vantar í húsin eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast látið umsjónarmann vita. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.

Syðri-Reykir í Biskupstungum

Verk-Vest hefur til umráða orlofshús á Syðri-Reykjum nokkrar vikur á hverju sumri í skiptum við Félag íslenskra náttúrufræðinga fyrir hús í Flókalundi.

Frá Syðri-Reykjum er stutt til flestra þéttbýlisstaða á Suðurlandi. Stutt er að fara að Skálholti, í Þjórsárdal, að Geysi og Gullfossi. Næstu verslanir eru í Reykholti og á Laugarvatni. Sundlaugar eru í Úthlíð, Reykholti, Laugarvatni og við Geysi. Margar skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenninu. Veiðileyfi fást á Efri-Reykjum í síma 486 8829 og Syðri-Reykjum í síma 486 8886. Hægt er að komast í siglingu á Hvítá frá Drumboddsstöðum nálægt Geysi og í jöklaferð á Langjökul frá Geysi.

 

Hús og búnaður

Í húsinu eru 2 svefnherbergi, setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Húsinu fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ásamt nokkrum ullarteppum. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað, handklæði, borðklúta, þurrkustykki, ræstiefni og salernispappír. Dvalargestir losa sig við sorp í gám við heimreiðina að Syðri-Reykjum, nokkru vestan við byggðina. Í húsinu er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og útigrill. Samanbrotið barnarúm er í tösku í svefnherbergi og barnastóll í stofu.

Rólur eru við húsið. Heitur pottur er líka til staðar.


Leiguskilmálar

Orlofshúsið er leigt viku í senn að sumrinu, frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma frá kl. 16:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 15.000. Skrifstofa félagsins annast úthlutun og útleigu. Lyklar eru afhentir á skrifstofunni með leigusamningi.

 

Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum hús sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofshúsa.

 

Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.

 

Umgengni.

  • Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
  • Gangið þrifalega um húsið og umhverfi þess. Minnist þess að gróður í nágrenni orlofshúsanna er viðkvæmur og óvarleg umgengni getur valdið varanlegum skaða.
  • Bílaumferð að húsunum er stranglega bönnuð. Notið bílastæðin.
  • Opinn eldur krefst varúðar, hvort sem er grill eða kertaljós. Bannað er að kveikja eld og einnota grill sem liggja á palli eða jörðinni eru algerlega bönnuð. Eldsvoðar hafa hlotist af þeim.
  • Tökum tillit hvert til annars. Öll háreysti, bílaumferð og óþarfa umgengni er bönnuð í orlofsbyggðinni milli kl. 23:00 og 09:00.
  • Við brottför skal ræsta húsið vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Þrífa heita pottinn. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér þar sem við á.
  • Umsjónarmaður fer yfir húsin eftir hverja dvalargesti og gætir þess að ekki vanti hreinsiefni eða annað sem byggðin leggur til. Hann kannar einnig ástand húsanna og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
  • Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við húsið eins og við viljum taka við því.

Ef eitthvað vantar í húsin eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast látið umsjónarmann vita. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.

Bjarnaborg á Suðureyri

« 1 af 4 »

Verkalýðsfélag Vestfirðinga á húsið nr. 26 við Aðalgötu á Suðureyri og leigir íbúð á neðri hæð hússins sem orlofsbústað. Suðureyri er dæmigert vestfirskt sjávarþorp, þar sem íbúar hafa í hundrað ár byggt afkomu sína á sjósókn og vinnslu sjávarafla.
Á síðari árum hefur þjónusta við ferðamenn farið mjög vaxandi í þorpinu. Þar er byggt á því sem heimamenn hafa viðurværi af og gestum gefið færi á að kynnast sjósókn og vinnslu sjávarafla, t.d. með heimsóknum í fiskvinnslu og sjóstangveiðum. Allmargir smábátar eru leigðir ferðamönnum til sjóstangveiða yfir sumarið á vegum fyrirtækisins Fisherman.
Suðureyri er meðal þeirra fáu staða á Vestfjörðum sem hafa aðgang að heitu vatni og þar er útisundlaug sem er afar vinsæl, einnig meðal Ísfirðinga.


Hús og búnaður

Íbúðin er u.þ.b. 115 m2. Í henni eru 3 svefnherbergi, setu- og borðstofa, eldhús, þvottahús með þvottavél og baðherbergi með sturtu. Íbúðinni fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni og salernispappír. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað, handklæði, borðklúta og þurrkustykki. Í íbúðinni er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og kolagrill. 
 

Leiguskilmálar

Íbúðin er leigð viku í senn að sumrinu, frá föstudegi til föstudags. Íbúðin er einnig leigð að vetrinum. Leigutakar koma milli kl. 14:00 og 21:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 16.000. Helgarleiga, þegar um hana er að ræða, er kr. 11.000. Skrifstofa félagsins annast úthlutun og útleigu. 
 

Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum íbúð sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofsdvalarstaða.

 

Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.

 

Umgengni.

  • Leigutaki ber ábyrgð á íbúðinni og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
  • Gangið þrifalega um húsið og umhverfi þess.
  • Opinn eldur krefst varúðar, hvort sem er grill eða kertaljós. Bannað er að kveikja eld og einnota grill sem liggja á palli eða jörðinni eru algerlega bönnuð. Eldsvoðar hafa hlotist af þeim.
  • Við brottför skal ræsta íbúðina vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér þar sem við á.
  • Umsjónarmaður fer yfir í eftir hverja dvalargesti og gætir þess að ekki vanti hreinsiefni eða annað sem félagið leggur til. Hann kannar einnig ástand íbúðarinnar og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
  • Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við íbúðina eins og við viljum taka við henni.

 

Ef eitthvað vantar í íbúðina eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.

Umsókn um orlofshús

Hér er að finna umsóknareyðublað til að sækja um orlofshús sumarið 2010.
Vefumsjón