Bjarnaborg á Suðureyri
Verkalýðsfélag Vestfirðinga á húsið nr. 26 við Aðalgötu á Suðureyri og leigir íbúð á neðri hæð hússins sem orlofsbústað. Suðureyri er dæmigert vestfirskt sjávarþorp, þar sem íbúar hafa í hundrað ár byggt afkomu sína á sjósókn og vinnslu sjávarafla.
Á síðari árum hefur þjónusta við ferðamenn farið mjög vaxandi í þorpinu. Þar er byggt á því sem heimamenn hafa viðurværi af og gestum gefið færi á að kynnast sjósókn og vinnslu sjávarafla, t.d. með heimsóknum í fiskvinnslu og sjóstangveiðum. Allmargir smábátar eru leigðir ferðamönnum til sjóstangveiða yfir sumarið á vegum fyrirtækisins Fisherman.
Suðureyri er meðal þeirra fáu staða á Vestfjörðum sem hafa aðgang að heitu vatni og þar er útisundlaug sem er afar vinsæl, einnig meðal Ísfirðinga.
Hús og búnaður
Íbúðin er u.þ.b. 115 m2. Í henni eru 3 svefnherbergi, setu- og borðstofa, eldhús, þvottahús með þvottavél og baðherbergi með sturtu. Íbúðinni fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni og salernispappír. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað, handklæði, borðklúta og þurrkustykki. Í íbúðinni er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og kolagrill.
Leiguskilmálar
Íbúðin er leigð viku í senn að sumrinu, frá föstudegi til föstudags. Íbúðin er einnig leigð að vetrinum. Leigutakar koma milli kl. 14:00 og 21:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 18.000. Helgarleiga, þegar um hana er að ræða, er kr. 14.000. Skrifstofa félagsins annast úthlutun og útleigu.
Félagsmenn geta einnig fengið leigðan sal á efri hæð hússins. Salurinn er vel búinn með eldhúsi, sér salerni, húsbúnaði ofl. Hægt er að leigja staka sólahringa eða helgar. Sólahringsleiga kostar kr. 10.000 en helgarleiga kostar kr. 18.000.
Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum íbúð sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofsdvalarstaða.
Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.
Umgengni.
- Leigutaki ber ábyrgð á íbúðinni og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
- Gangið þrifalega um húsið og umhverfi þess.
- Opinn eldur krefst varúðar, hvort sem er grill eða kertaljós. Bannað er að kveikja eld og einnota grill sem liggja á palli eða jörðinni eru algerlega bönnuð. Eldsvoðar hafa hlotist af þeim.
- Við brottför skal ræsta íbúðina vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér þar sem við á.
- Umsjónarmaður fer yfir í eftir hverja dvalargesti og gætir þess að ekki vanti hreinsiefni eða annað sem félagið leggur til. Hann kannar einnig ástand íbúðarinnar og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
- Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við íbúðina eins og við viljum taka við henni.
Ef eitthvað vantar í íbúðina eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.