Illugastaðir í Fnjóskadal

« 1 af 3 »
Verk-Vest á helming í orlofshúsi á Illugastöðum á móti Verkalýðsfélagi Snæfellinga.

Illugastaðir eru u.þ.b. 50 km. frá Akureyri. Í Fnjóskadal er náttúrufegurð mikil og þar er hinn víðáttumikli Vaglaskógur. Svæðið er því vel fallið til gönguferða og náttúruskoðunar, hvort sem er að sumri eða vetri. Frá Illugastöðum er 1 klst. akstur til Húsavíkur og álíka langt til náttúruperlunnar Mývatns.

 

Sundlaug er á Illugastöðum, heitur pottur og gufubað. Í þjónustumiðstöð er lítil verslun með helstu nauðsynjavörur. Á svæðinu er leikvöllur með skemmtilegum leiktækjum fyrir börnin. Örstutt er yfir í Vaglaskóg þar sem eru ótal skemmtilegar gönguleiðir.

 

Hús og búnaður

Húsið er 45 m2. Í því eru 2 svefnherbergi, setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Húsinu fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni og salernispappír. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað, handklæði, borðklúta og þurrkustykki. Í húsinu er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og útigrill. Barnarúm og stólar og aukadýnur fást hjá umsjónarmanni í þjónustumiðstöð. Heitur pottur er við húsið.

 

Leiguskilmálar

Orlofshúsið er leigt viku í senn að sumrinu, frá föstudegi til föstudags. Húsið er einnig leigt að vetrinum. Leigutakar koma milli kl. 14:00 og 21:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 18.000. Helgarleiga, þegar um hana er að ræða, er kr. 14.000. Skrifstofa félagsins annast úthlutun og útleigu að sumrinu, en umsjónarmaður að vetrinum. Lyklar fást hjá umsjónarmanni gegn framvísun leigusamnings. Leigutaki verður að vitja lykla á auglýstum tíma. Ef það dregst er nauðsynlegt að láta umsjónarmann vita. Að öðrum kosti er ekki tryggt að lyklar fáist afhentir við komu. Sími hjá umsjónarmanni er 462 6199.

 

Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum hús sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofshúsa.

 

Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.

 

Umgengni.

  • Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
  • Gangið þrifalega um húsið og umhverfi þess. Minnist þess að gróður í nágrenni orlofshúsanna er viðkvæmur og óvarleg umgengni getur valdið varanlegum skaða.
  • Bílaumferð að húsunum er stranglega bönnuð. Notið bílastæðin.
  • Opinn eldur krefst varúðar, hvort sem er grill eða kertaljós. Bannað er að kveikja eld og einnota grill sem liggja á palli eða jörðinni eru algerlega bönnuð. Eldsvoðar hafa hlotist af þeim.
  • Tökum tillit hvert til annars. Öll háreysti, bílaumferð og óþarfa umgengni er bönnuð í orlofsbyggðinni milli kl. 23:00 og 09:00.
  • Við brottför skal ræsta húsið vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér þar sem við á. Lyklum skal skila til umsjónarmanns.
  • Umsjónarmaður fer yfir húsin eftir hverja dvalargesti og gætir þess að ekki vanti hreinsiefni eða annað sem byggðin leggur til. Hann kannar einnig ástand húsanna og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
  • Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við húsið eins og við viljum taka við því.

 

Ef eitthvað vantar í húsin eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast látið umsjónarmann vita. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.

Vefumsjón