Svignaskarð í Borgarfirði
Orlofsbyggðin í Svignaskarði er vel í sveit sett. Ferðaþjónusta er á háu stigi í Borgarfirði og þar eru margar náttúruperlur, s.s. fossinn Glanni í Norðurá og Paradísarlaut. Í Borgarfirði og á Mýrum eru söguslóðir Egils Skallagrímssonar og Sturlungu og sagan er þarna við hvert fótmál. Stutt er í fjölbreytta þjónustu og verslanir í Borgarnesi og ekki er tiltökumál að bregða sér til Akraness eða Reykjavíkur.
Þá er rómuð náttúrufegurð Snæfellsness og dularmögn Snæfellsjökuls á næstu grösum.
Góð þjónustumiðstöð er við byggðina, þar sem aðgangur er að böðum og gufubaði. Vel er séð fyrir afþreyingu, tveir sparkvellir, leiktæki fyrir börnin og minigolf. Stutt er í afbragðsgóðar sundlaugar í Borgarnesi og Varmalandi. Margar góðar gönguleiðir liggja frá byggðinni.
Húsin í Svignaskarði eru leigð allan ársins hring.
Svignaskarð er í alfaraleið og þangað er greið leið allt árið. Vetrarleiga er því vinsæl og vaxandi.
Húsin og búnaður
Hús nr. 30 er 72 fermetrar með 3 svefnherbergjum með gistirými fyrir 7. Hús nr. 9 er 67 fermetrar með 3 svefnherbergjum með gistirými er fyrir 7 - 8. Þá eru einnig ungbarnarúm í báðum húsunum. Í báðum húsunum eru setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Húsunum fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ræstiefni og salernispappír. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað, handklæði, borðklúta og þurrkustykki. Í húsunum er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og útigrill. Barnarúm og stólar fást hjá umsjónarmanni í þjónustumiðstöð. Heitur pottur er við bæði húsin.
Leiguskilmálar
Orlofshúsin eru leigð viku í senn að sumrinu, frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma milli kl. 14:00 og 22:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 18.000 fyrir hús. Helgarleiga, þegar um hana er að ræða, er kr. 14.000. Lyklar fást hjá umsjónarmanni gegn framvísun leigusamnings. Leigutaki verður að vitja lykla á auglýstum tíma. Ef það dregst er nauðsynlegt að láta umsjónarmann vita. Að öðrum kosti er ekki tryggt að lyklar fáist afhentir við komu.
Umsjónarmaður er Einar Björnsson s. 437 1767 - GSM 893 1767.
Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum hús sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofshúsa.
Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.
Umgengni.
- Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
- Gangið þrifalega um húsið og umhverfi þess. Minnist þess að gróður í nágrenni orlofshúsanna er viðkvæmur og óvarleg umgengni getur valdið varanlegum skaða.
- Opinn eldur krefst varúðar, hvort sem er grill eða kertaljós. Bannað er að kveikja eld og einnota grill sem liggja á palli eða jörðinni eru algerlega bönnuð. Eldsvoðar hafa hlotist af þeim.
- Tökum tillit hvert til annars. Öll háreysti, bílaumferð og og óþarfa umgengni er bönnuð í orlofsbyggðinni milli kl. 23:00 og 09:00.
- Við brottför skal ræsta húsið vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Þrífa heita pottinn og ganga frá honum. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér þar sem við á. Lyklum skal skila til umsjónarmanns.
- Umsjónarmaður fer yfir húsin eftir hverja dvalargesti og gætir þess að ekki vanti hreinsiefni eða annað sem byggðin leggur til. Hann kannar einnig ástand húsanna og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
- Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við húsið eins og við viljum taka við því.
Ef eitthvað vantar í húsin eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast látið umsjónarmann vita. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.