Syðri-Reykir í Biskupstungum
Frá Syðri-Reykjum er stutt til flestra þéttbýlisstaða á Suðurlandi. Stutt er að fara að Skálholti, í Þjórsárdal, að Geysi og Gullfossi. Næstu verslanir eru í Reykholti og á Laugarvatni. Sundlaugar eru í Úthlíð, Reykholti, Laugarvatni og við Geysi. Margar skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenninu. Veiðileyfi fást á Efri-Reykjum í síma 486 8829 og Syðri-Reykjum í síma 486 8886. Hægt er að komast í siglingu á Hvítá frá Drumboddsstöðum nálægt Geysi og í jöklaferð á Langjökul frá Geysi.
Hús og búnaður
Í húsinu eru 2 svefnherbergi, setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Húsinu fylgja öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður, sængur og koddar, ásamt nokkrum ullarteppum. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað, handklæði, borðklúta, þurrkustykki, ræstiefni og salernispappír. Dvalargestir losa sig við sorp í gám við heimreiðina að Syðri-Reykjum, nokkru vestan við byggðina. Í húsinu er útvarp, sjónvarp, örbylgjuofn og útigrill. Samanbrotið barnarúm er í tösku í svefnherbergi og barnastóll í stofu.
Rólur eru við húsið. Heitur pottur er líka til staðar.
Leiguskilmálar
Orlofshúsið er leigt viku í senn að sumrinu, frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma frá kl. 16:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 18.000. Skrifstofa félagsins annast úthlutun og útleigu. Lyklar eru afhentir á skrifstofunni með leigusamningi.
Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum hús sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofshúsa.
Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.
Umgengni.
- Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
- Gangið þrifalega um húsið og umhverfi þess. Minnist þess að gróður í nágrenni orlofshúsanna er viðkvæmur og óvarleg umgengni getur valdið varanlegum skaða.
- Bílaumferð að húsunum er stranglega bönnuð. Notið bílastæðin.
- Opinn eldur krefst varúðar, hvort sem er grill eða kertaljós. Bannað er að kveikja eld og einnota grill sem liggja á palli eða jörðinni eru algerlega bönnuð. Eldsvoðar hafa hlotist af þeim.
- Tökum tillit hvert til annars. Öll háreysti, bílaumferð og óþarfa umgengni er bönnuð í orlofsbyggðinni milli kl. 23:00 og 09:00.
- Við brottför skal ræsta húsið vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Þrífa heita pottinn. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér þar sem við á.
- Umsjónarmaður fer yfir húsin eftir hverja dvalargesti og gætir þess að ekki vanti hreinsiefni eða annað sem byggðin leggur til. Hann kannar einnig ástand húsanna og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
- Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við húsið eins og við viljum taka við því.
Ef eitthvað vantar í húsin eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast látið umsjónarmann vita. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.