Furulundur 8F Akureyri
Bærinn stendur fyrir miðju Norðurlandi og stutt er t.d. til Mývatns, þar sem nú hefur verið komið upp baðaðstöðu í líkingu við Bláa lónið.
Íbúð og búnaður
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, rúmgóð stofa með góðum svölum á móti suðri, eldhús með borðkrók og baðherbergi með sturtu. Í íbúðinni er sjónvarp og útvarp og öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín utan um sængurfatnað, handklæði, borðklúta, þurrkustykki, ræstiefni og salernispappír.
Leiguskilmálar
Íbúðin er leigð viku í senn frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma milli kl. 14:00 og 21:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 16.000. Helgarleiga, þegar um hana er að ræða, er kr. 11.000. Skrifstofa félagsins annast úthlutun og útleigu. Lyklar eru afhentir á skrifstofu félagsins með leigusamningi.
Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum hús sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofsíbúða.
Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.
Umgengni.
- Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
- Gangið þrifalega um íbúðina og húsið. Reykingar eru bannaðar í öllum orlofshúsum og íbúðum Verk-Vest. Notið svalirnar.
Opinn eldur krefst varúðar, hvort sem er grill eða kertaljós. Bannað er að kveikja eld og einnota grill sem liggja á palli eða jörðinni eru algerlega bönnuð. Eldsvoðar hafa hlotist af þeim. - Tökum tillit hvert til annars. Í fjölbýlishúsum er stutt milli granna og háreysti og umgengni seint að kvöldi eða að næturlagi getur valdið öðrum ónæði.
- Við brottför skal ræsta íbúðina vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér í sorpgeymsluna á neðri hæð.
- Áríðandi er að skilja við íbúðina eins og lýst er hér að framan. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
- Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við íbúðina eins og við viljum taka við henni.
Ef eitthvað vantar í íbúðina eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.