Hagamelur 45

« 1 af 4 »
Íbúð og búnaður

Íbúðin er á fyrstu hæð á rólegum stað í Vesturbænum. Í henni eru tvö svefnherbergi, rúmgóð stofa, eldhús með borðkrók og baðherbergi með sturtu. Í íbúðinni er sjónvarp og útvarp og öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður. Uppþvottavél er í eldhúsi. Allur rúmfatnaður er til staðar, sængur, koddar og lín.

 

Leiguskilmálar

Íbúðin er leigð viku í senn, frá föstudegi til föstudags. Leigutakar koma milli kl. 14:00 og 21:00, brottför í síðasta lagi kl. 12:00. Vikuleiga er kr. 19.000. Skrifstofa félagsins annast úthlutun og útleigu. Lyklar eru afhentir á skrifstofu félagsins með leigusamningi.

 

Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum hús eða íbúðir sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofsíbúða.

 

Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.

 

Umgengni.

  • Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
  • Gangið þrifalega um íbúðina og húsið. Reykingar eru bannaðar í öllum orlofshúsum og íbúðum Verk-Vest. Notið svalirnar.
  • Tökum tillit hvert til annars. Í fjölbýlishúsum er stutt milli granna og háreysti og umgengni seint að kvöldi eða að næturlagi getur valdið öðrum ónæði.
  • Við brottför skal ræsta íbúðina vandlega. Ryksuga og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtuklefa, salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér í sorpgeymslu.
  • Umsjónarmaður fer yfir íbúðina eftir hverja dvalargesti, tekur óhreina tauið og kemur því í þvott og sækir hreint. Hann kannar einnig ástand íbúðarinnar og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
  • Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við íbúðina eins og við viljum taka við henni.

 

Ef eitthvað vantar í íbúðina eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Verk-Vest í síma 456 3190.

Vefumsjón