16. febrúar 2012
Þrif og skil eftir dvöl í orlofshúsi Verk Vest
ÞRIF OG SKIL
Minnislisti fyrir dvalargesti í íbúðum Orlofssjóðs Verkalýðsfélags Vestfirðinga.
· Leigutími íbúðarinnar er frá kl.13:00 á komudegi og til kl.12:00 á brottfarardegi. Vinsamlegast látið vita í hvaða ástandi íbúðin var á komudegi. Athugasemdum skal komið á framfæri á skrifstofu félagsins í síma 4563190 eða á postur@verkvest.is.
· Leigutaki skal skila íbúðinni, áhöldum og munum hreinum þegar leigutíma lýkur og íbúðinni er skilað.
Minnisatriði:
1.
Skúra öll gólf, þrífa sturtuklefa, handlaug og
WC,
þurka af húsgögnum, gluggakistum og öðrum húsbúnaði.
2. Þrífa ísskáp og frysti, ekki slökkva á ísskáp.
3. Þrífa bakarofn, eldavél og örbylgjuofn.
4. Fjarlægja allt rusl. Setja þvott í poka.
5. Loka gluggum og læsa.
6. Reykingar og húsdýrahald er stranglega bannað.
7. Óþarfa hávaði og ónæði er bannað frá kl. 23.00 - 08:00.
8. Muna að skila lyklum til félagsins að dvöl lokinni.
Höfum í huga.
Í hreinni og vistlegri íbúð er gott að dvelja, stöndum því saman og gerum dvölina í orlofsíbúðum félagsins sem ánægjulegasta með því að skilja við íbúðina eins og við viljum koma að henni.