Verslunarmannafélag Ísafjarðar
Á aðalfundi í september 1975 var samþykkt stækkun á félagssvæði V.Í. þannig að það næði auk Ísafjarðarkaupstaðar yfir Ísafjarðarsýslur báðar að Bolungarvík undanskilinni, þar sem starfaði sérstakt félag. Verslunarmannafélag Bolungarvíkur sameinaðist félaginu í júní 1995.
Verslunarmannafélagið eignaðist árið 1990 sumarbústað við Húsafell í Borgarfirði. Bústaðurinn var seldur árið 1999, en í staðinn keypt orlofshús í Ölfusborgum. Félagið eignaðist einnig íbúð við Ásholt í Reykjavík árið 1993.
Verslunarmannafélagið átti um tíma aðild að sameiginlegri skrifstofu verkalýðsfélaganna á Ísafirði, en opnaði eigin skrifstofu árið 1991 í Hafnarstræði 14 og réð til hennar starfsmann. Félagið flutti starfsemi sína í hús Vestra hf. (Ísfirðingshúsið) árið 1997 og árið eftir hóf Freygerður Ólafsdóttir störf á skrifstofu félagsins.
Verslunarmenn samþykktu í allsherjaratkvæðagreiðslu að félag þeirra tæki þátt í stofnun Verkalýðsfélags Vestfirðinga haustið 2002 og mynduðu sérstaka deild í félaginu.
Samkvæmt gögnum félagsins hafa formenn þess verið:
Jón Páll Halldórsson 1957-1960
Haukur Ingason 1960-1961
Gunnar Jónsson 1962-1964
Garðar Einarsson 1964-1973
Geir A. Guðsteinsson 1973-1977
Eiríkur Sigurðsson 1977-1978
Friðrik Adolfsson 1978-1980
Anna M. Helgadóttir 1980-1981
Elín Tryggvadóttir 1981-1986
Salmar Jóhannsson 1986-1992
Gylfi Guðmundsson 1992-1998
Finnur Magnússon 1999-2002
Eldri félög verslunarmanna
Annað félag var stofnað 14. maí 1937 undir merkjum Alþýðusambands Íslands. Það hét Verslunarmannafélagið, Ísafirði og starfaði til ársins 1943. Gögn félagsins eru varðveitt í Héraðsskjalasafninu á Ísafirði. Félagið var hreint launþegafélag og náði samningum við verslunareigendur, bakarí og bæjarstofnanir á Ísafirði. Fyrsti formaður Verslunarmannafélagsins var Gunnar Andrew, en seinni árin Sigurjón Sigurbjörnsson. Stór hluti félagsmanna starfaði hjá Kaupfélagi Ísfirðinga. Þegar starfsfólk Kaupfélagsins ákvað að stofna sérstakt starfsmannafélag og semja beint við atvinnurekanda sinn, lagðist verslunarmannafélagið niður. Merki þess var endurreist árið 1957, eins og fram kemur efst á þessari síðu.
Heimild:
Skjalasafn verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum. Deild 26. Verslunarmannafélag Ísafjarðar.