Réttindi

  1. Einungis þeir sem sannanlega greiða eða er greitt af til sjóðsins og verið er að greiða fyrir til sjóðsins þegar réttur til aðstoðar myndast.
  2. Þeir sem greidd hafa verið af til sjóðsins iðgjöld skv. kjarasamningum í a.m.k. 6 mánuði.
  3. Hafi umsækjandi verið fullgildur aðili í sjúkrasjóði annars félags innan ASÍ þar til hann byrjar greiðslu til sjóðsins.
  4. Hafi iðgjöld til sjúkrasjóðs ekki verið greidd vegna sjóðfélaga, en hann getur fært sönnur á að félagsgjöld til félagsins hafi samkvæmt reglulega útgefnum launaseðlum verið dregin af launum hans síðustu 6 mánuði, skal hann njóta réttar eins og iðgjöld til sjúkrasjóðs hafi verið greidd.

Dagpeningar

a) Frá og með fyrsta degi eftir að samningsbundinni eða lögákveðinni greiðslu frá vinnuveitanda lýkur greiðast dagpeningar í veikinda- og slysaforföllum í 150 daga (5 mánuði). Dagpeningar skulu að viðbættum bótum almannatrygginga, greiðslum úr slysatryggingu launafólks eða annarri lögbundinni tryggingu, vera 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum.

b) Dagpeningar greiðast í 90 daga (3 mánuði), að loknum kjarasamningsbundnum greiðslum launagreiðanda vegna langveikra og alvarlega fatlaðra barna. Greiðslur skulu vera 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum. Með langveikum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlegan og/eða langvinnan sjúkdóm og þarfnast sérstakrar um-önnunar. Með alvarlega fötluðum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlega greindar-skerðingu, geðraskanir eða alvarlega líkamlega hömlun og þarfnast sérstakrar umönnunar.

 

c) Dagpeningar greiðast í 90 daga (3 mánuði) vegna mjög alvarlegra veikinda maka. Greiða skal 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum.

Dánarbætur

Dánarbætur, kr. 180.000 greiðast til eftirlifandi maka eða dánarbús við andlát sjóðfélaga sem greitt hefur verið af til sjóðsins síðustu 12 mánuði af starfsævi hans. Ef liðin eru 5 ár eða meira síðan sjóðfélagi hætti störfum greiðast kr. 80.000.
Bótafjárhæð miðast við launavísitölu pr. 1. júlí 2006 og tekur sömu breytingum og hún.

Hafi sjóðurinn keypt líftryggingu fyrir sjóðfélaga greiðast ekki dánarbætur.

Inneignatengdir styrkir

Greiddir eru styrkir til félagsmanna vegna líkamsræktar, myndatöku vegna sjúkdóma og slysa og kostnaðar vegna hjálpartækja s.s. gleraugna og heyrnartækja ef ekki koma til greiðslur frá T.R.

Upphæð skal miða við 50% af útlögðum kostnaði skv. reikningi, að hámarki 40% af iðgjöldum viðkomandi í sjúkrasjóð síðustu 36 mánuði.

 

Sjóðfélagi sem látið hefur af störfum og greitt var af til sjóðsins a.m.k síðasta árið fyrir starfslok getur nýtt þá inneign sem hann átti við starfslok á 5 næstu árum.

Aðrir styrkir

Jólaglaðningur
Í desembermánuði ár hvert skal verja, samkvæmt ákvörðun sjóðsstjórnar hverju sinni, ákveðinni upphæð til félagsmanna sem orðnir eru 70 ára og hættir störfum.

Sjúkraþjálfun og endurhæfing
Sjóðfélagar fá styrk vegna sjúkraþjálfunar og sjúkranudds, allt að 20 skipti á ári. Endurgreidd eru 50% kostnaðarhluta sjúklings skv. reikningi frá viðkomandi stofnun, enda sé meðferðin samkvæmt tilvísun frá lækni.

 

Meðferð vegna áfengis-, spila- eða fíkniefnasýki
Vegna meðferðar út af áfengis-, spila- eða fíkniefnasýki sjóðfélaga greiðast að lokinni meðferð dagpeningar í mest 8 vikur.

 

Vinnutap á meðgöngutíma
Sé móður nauðsynlegt af heilsufars- eða öryggisástæðum að vera frá vinnu á fyrstu 7 mánuðum meðgöngutímans skal hún eiga rétt á dagpeningum eins og um veikindi væri að ræða.

 

Fæðingarstyrkur
Kona sem á rétt til dagpeninga skv. 4. gr. fær greiddan fæðingarstyrk sem nemur kr. 60.000, enda sé greitt iðgjald til félagsins af viðkomandi í fæðingarorlofi hennar. Sama rétt á kvæntur maður eða sambýlismaður ef hann eignast barn og konan á ekki rétt á fæðingarstyrk úr sjúkrasjóði. Heimilt er að veita styrk vegna ættleiðingar barns skv. þessari grein.

 

Tæknifrjóvgun
Sjóðurinn greiðir styrk vegna glasafrjóvgunar 100.000 kr. í eitt skipti og til tæknisæðingar 25.000 kr. einu sinni á ári.

 

Dvöl á Heilsustofnun í Hveragerði
Heimilt er að greiða sjóðfélaga sem verið hefur í fullu starfi næstliðna 12 mánuði styrk vegna dvalar á Heilsustofnun í Hveragerði. Styrkupphæð er að hámarki kr. 1000.- á dag í allt að 4 vikur. Sjóðfélagi í hlutastarfi fær greitt hlutfallslega. Umsókn skal fylgja læknisvottorð frá þeim lækni sem sem sendi viðkomandi til dvalarinnar og dagsett kvittun frá Heilsustofnun.

Umsóknir og læknisvottorð

Sá sem æskir greiðslu dagpeninga skal leggja fram skriflega umsókn til sjóðsins ásamt læknisvottorði er tilgreini þann dag sem hlutaðeigandi veiktist eða slasaðist og hvenær hann varð eða verður vinnufær á ný. Sjóðurinn endurgreiðir umsækjendum kostnað af læknisvottorðum vegna umsóknar. Eyðublöð fyrir umsóknir lætur sjóðsstjórn gera og lætur umsækjendum í té.

Heimilt er stjórn sjóðsins að krefjast þess að umsækjandi um dagpeninga leggi fram vottorð frá sérstökum trúnaðarlækni sjóðsins.

Reglugerð sjúkrasjóðs Verk-Vest

Reglugerð sjúkrasjóðs í heild má nálgast með því að smella hér.
Vefumsjón