Aðrir styrkir

Jólaglaðningur
Í desembermánuði ár hvert skal verja, samkvæmt ákvörðun sjóðsstjórnar hverju sinni, ákveðinni upphæð til félagsmanna sem orðnir eru 70 ára og hættir störfum.

Sjúkraþjálfun og endurhæfing
Sjóðfélagar fá styrk vegna sjúkraþjálfunar og sjúkranudds, allt að 20 skipti á ári. Endurgreidd eru 50% kostnaðarhluta sjúklings skv. reikningi frá viðkomandi stofnun, enda sé meðferðin samkvæmt tilvísun frá lækni.

 

Meðferð vegna áfengis-, spila- eða fíkniefnasýki
Vegna meðferðar út af áfengis-, spila- eða fíkniefnasýki sjóðfélaga greiðast að lokinni meðferð dagpeningar í mest 8 vikur.

 

Vinnutap á meðgöngutíma
Sé móður nauðsynlegt af heilsufars- eða öryggisástæðum að vera frá vinnu á fyrstu 7 mánuðum meðgöngutímans skal hún eiga rétt á dagpeningum eins og um veikindi væri að ræða.

 

Fæðingarstyrkur
Kona sem á rétt til dagpeninga skv. 4. gr. fær greiddan fæðingarstyrk sem nemur kr. 60.000, enda sé greitt iðgjald til félagsins af viðkomandi í fæðingarorlofi hennar. Sama rétt á kvæntur maður eða sambýlismaður ef hann eignast barn og konan á ekki rétt á fæðingarstyrk úr sjúkrasjóði. Heimilt er að veita styrk vegna ættleiðingar barns skv. þessari grein.

 

Tæknifrjóvgun
Sjóðurinn greiðir styrk vegna glasafrjóvgunar 100.000 kr. í eitt skipti og til tæknisæðingar 25.000 kr. einu sinni á ári.

 

Dvöl á Heilsustofnun í Hveragerði
Heimilt er að greiða sjóðfélaga sem verið hefur í fullu starfi næstliðna 12 mánuði styrk vegna dvalar á Heilsustofnun í Hveragerði. Styrkupphæð er að hámarki kr. 1000.- á dag í allt að 4 vikur. Sjóðfélagi í hlutastarfi fær greitt hlutfallslega. Umsókn skal fylgja læknisvottorð frá þeim lækni sem sem sendi viðkomandi til dvalarinnar og dagsett kvittun frá Heilsustofnun.

Vefumsjón