Ályktun stjórnar Verk Vest - 176 störf í uppnámi á Vestfjörðum
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga ræddi þá alvarlegu stöðu sem blasir við smærri fiskvinnslum og útgerðum á Vestfjörðum verði áform stjórnvalda um afnám línuívilnunar, uppbóta fyrir rækju- og skel ásamt skerðingum á byggðakvóta. Vesfirðingar standa enn og aftur frammi fyrir alvarlegum áskorunum í atvinnumálum og nú vegna alvarlegs inngrips Alþingis sem gæti orðið til þess að 176 störf eru í hættu á að tapast í smærri byggðalögum á Vestfjörðum. Í kjölfar umræðu á stjórnarfundi félagsins samþykkti stjórn að senda frá sér eftirfarandi ályktun og opið bréf með áskorun til alþingismanna.
Afnám línuvilnunar, rækjuuppbóta og skerðingar byggðakvóta geta eytt útgerð og vinnslu í smærri sjávarbyggðum á Vestfjörðum
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir yfir hættuástandi í atvinnumálum á Vestfjörðum vegna fyrirhugaðs afnáms línuívilnunar, rækjubóta og skerðinga á byggðakvóta. Verði þessar aðgerðir stjórnvalda að veruleika þá er viðbúið að heilsársútgerð og -vinnsla í smærri sjávarbyggðum á Vestfjörðum geti hreinlega lagst af. Alls eru 176 störf í hættu á Drangsnesi, Flateyri, Hólmavík, Suðureyri, Súðavík og Þingeyri, slíkt samsvarar um 16.242 manna hópuppsögn í Reykjavík. Ef þessar áætlanir stjórnvalda koma til framkvæmda verður sú blóðtaka algjört reiðarslag fyrir smærri sjávarbyggðir á Vestfjörðum.
Glöggt dæmi um slíkar afleiðingar er uppbygging heilsárs fiskvinnslu á Hólmavík sem er háð óbreyttu kerfi línuívilnunar, óskertum byggðakvóta og uppbótum fyrir rækju og skel. Línuívilnun hefur hvað mest áhrif á litlar og meðalstórar vinnslur og útgerðir sem starfa á ársgrundvelli þar sem áhersla er lögð á að skapa verðmæti með gæðum og sjálfbærum veiðiaðferðum. Fyrirhugaðar breytingar munu hafa stórfelld áhrif á atvinnu, tekjur og stöðugleika hjá smærri fiskvinnslum og útgerðum með tilheyrandi hópuppsögnum í greininni. Sambærileg áhrif verða einnig á Drangsnesi, Flateyri, Suðureyri og Þingeyri verði breytingarnar að veruleika.
Niðurskurðurinn sem þegar virðist hafa verið ákveðinn mun bitna harðast á atvinnuöryggi fiskverkafólks og sjómanna og eru merki þess þegar farin að gera vart við sig. Ljóst má vera að við óbreytt ástand munu smærri fiskvinnslur í auknum mæli grípa til þess ráðs að loka í enn lengri tíma en áður hefur tíðkast eða jafnvel loka fyrir fullt og allt. Það mun leiða til gríðarlegs atvinnuóöryggis hjá fiskverkafólki og sjómönnum sem skapa þjóðarbúinu mikil verðmæti. Stjórnvöldum ber skylda til að koma í veg fyrir að þær aðstæður skapist og verja þessi störf með öllum tiltækum ráðum.
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga skorar því á Alþingismenn að ganga fram af festu og verja störf fiskverkafólks og sjómanna með því að tryggja núverandi kerfi línuívilnunar og uppbóta fyrir rækju og skel sem og styrkja byggðakvótann enn frekar.
Áskorun - opið bréf til alþingisman
Ágæti alþingismaður,
Mjög alvarlegt ástand blasir við smærri sjávarbyggðum á Vestfjörðum verði afnám línuívilnunar og skerðingar á byggðarkvóta að veruleika. Svo alvarlegt inngrip stjórnvalda inn í kerfi sem ætlað er að styðja við og tryggja atvinnuuppbyggingu í smærri sjávarbyggðum er með öllu óásættanlegt. Verði fyrirhugaðar breytingar að veruleika má leiða að því líkum að smærri fiskvinnslur og útgerðir á Vestfjörðum sem og í öðrum smærri sjávarplássum hringinn í kringum landið neyðist til að hætta starfsemi með tilheyrandi fjöldauppsögnum og tekjutapi fyrir samfélögin.
Mikilvægt er að stjónvöld hætti pólitískum hártogunum um aðgengi að fiskveiðiauðlindum landsmanna og tryggi starfsfólki sem byggir lífsafkomu sína á heilsárs störfum við fiskvinnslu og veiðar í smærri sjávarbyggðum öruggt starfsumhverfi. Á Vestfjörðum er um 176 störf að ræða sem gætu tapast, sambærilegur fjöldi í Reykjavík væru 16.242 störf!
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga skorar á ALLA alþingismenn þjóðarinnar að draga til baka hugmyndir um afnám línuívilnunar og skerðingar á byggðakvóta. Alþingi er hvatt til að fjalla um þessi mikilvægu mál með hagsmuni smærri sjávarbyggða að leiðarljósi og að ná sátt um þau fyrir þinghlé í desember næst komandi.
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga