Translate to

Fréttir

Kjarasamingur fyrir smábátasjómenn undirritaður

Smábátar við Ísafjarðardjúp á sjómannadagssiglingu Smábátar við Ísafjarðardjúp á sjómannadagssiglingu

Rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi voru undirritaðir kjarasamningar milli samtaka sjómanna annars vegar og Landsambands smábátaeigenda hins vegar. Með samningnum má segja að mikilvægur áfangi í réttindabaráttu smábátasjómanna hafi náðst. Í þessu samhengi er rétt að benda á að kjarasamningur sem var gerður var í desember 2007 var felldur í atkvæðagreiðslu aðila í janúar 2008 þrátt fyrir að félagsmenn Verk Vest hafi samþykkt samninginn á sínum tíma. Ekki hefur því verið í gildi heildarsamningur fyrir þessa stétt sjómanna frá þessum tíma þó svo að einstaka útgerðir á Vestfjörðum hafi gert samninga í nafni sinna útgerða við Verk Vest.

 

Sú ákvörðun var tekin við undirritun samningana í gærkvöldi að atkvæði um samninginn yrðu talin sameiginlega fyrir þau aðildarfélög SSÍ sem standa að samningnum. Reiknað er með að atkvæði verði talin sameiginlega í húsakynnum sáttasemjara þann 5. október næstkomandi. Félögin sjá um að kynna samninginn og sjá um að atkvæðagreiðsla fari fram meðal þeirra félagsmanna sem samningurinn nær til. Fyrir 5. október þurfa síðan atkvæðin og önnur kjörgögn að hafa borist skrifstofu SSÍ og verður talið í húsi ríkissáttasemjara fyrir hádegi þann 5. okt.

 

Hægt er að nálgast samninginn á skrifstofum félagsins á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík sem og á heimasíðu félagsins. Kjörgögnum ásamt öðrum upplýsingum um samninginn verður einnig dreift til þeirra sem starfa sem smábátasjómenn á félagssvæði Verk Vest á næstu dögum.

 

Samninginn má nálgast hér.

Deila