Translate to

Fréttir

Labour.is

ASÍ kynnir nýja nýja vefsíðu labour.is sem nú er komin í loftið. labour.is er upplýsingasíða fyrir launafólk sem er nýtt á íslenskum vinnumarkaði. Þá vonast ASÍ einnig til að síðan nái til þeirra sem eru í hvað verstu aðstæðunum, þolendum mansals á vinnumarkaði.

Síðan er á 11 tungumálum: ensku, pólsku, litháísku, lettnesku, spænsku, rúmensku, arabísku, úkraínsku, rússnesku, farsi (persnesku) og íslensku.

Á síðunni má finna almennar upplýsingar um helstu réttindi á vinnumarkaði en fólki er einnig vísað á viðkomandi stéttarfélag fyrir nánari upplýsingar og aðstoð.

Samhliða útgáfu vefsíðunnar kemur út bæklingur, einnig á 11 tungumálum, sem vísar fólki áfram á labour.is

Deila