Translate to

Fréttir

Opnað fyrir sumar umsóknir í orlofshús Verk Vest

Þann 23. mars verður opnað fyrir umsóknir um orlofshús hjá Verk Vest sumarið 2020. Félagsmenn geta farið inn á orlofsvef félagsins og sótt um með því að velja: Sumar.

Félagið býður upp á orlofshús fyrir félagsmenn í öllum landshlutum sumarið 2020. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Einarsstaðir á héraði

Flókalundur í Vatnsfirði

Illugastaðir í Fnjóskadal

Kiðárskógur 1 í Húsafelli NÝTT

Svignaskarð í Borgarfirði

Ölfusborgir við Hveragerði

Orlofshúsin eru leigð í viku frá föstudegi til föstudags. Hægt er að sækja um eina viku með allt að fjórum valmöguleikum. Tímabilið hefst föstudaginn 15. maí og lýkur þann 11. september. Verð fyrir viku er 30.000.kr. Félagsmaður þarf að eiga að lágmarki 36 punkta til að geta sótt um.

Umsóknarfrestur rennur út 15. apríl 2020

Fyrsta úthlutun fer fram 16. apríl og munu allir þeir sem sóttu um fá senda niðurstöðu úthlutunarinnar í tölvupósti.

Félagið á einnig hlut í orlofshúsi á Spáni og er það leigt í tvær vikur í senn að sumrinu, frá þriðjudegi til þriðjudags. Sumarleiga fyrir tvær vikur er kr. 103.000 og er skilagjald innifalið í leiguverði. Ekki þarf að eiga punkta til að panta húsið. Hér er hægt að skoða laus tímabil á Spáni, en íbúðin en eingögnu bókanleg í gegnum Verk Vest í síma 456 5190.


Deila