Translate to

Fréttir

Opnað fyrir umsóknir í orlofshús Verk Vest fyrir sumarið 2023

Illugastaðir Illugastaðir
Flókalundur Flókalundur
Spánarhúsið Vinaminni Spánarhúsið Vinaminni
Svignaskarð hús 30 Svignaskarð hús 30

Þann 8. mars verður opnað fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrir sumarið 2023.

Félagsmenn geta farið inn á orlofsvef félagsins  http://orlof.is/verkvest/ og sótt um með því að velja: Sumar.

Félagið býður upp á orlofshús fyrir félagsmenn í öllum landshlutum sumarið 2023 og ættu því flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Einarsstaðir á héraði

Flókalundur í Vatnsfirði

Illugastaðir í Fnjóskadal

Svignaskarð í Borgarfirði

Ölfusborgir við Hveragerði

Ásabyggð hjá Flúðum

Orlofshúsin eru leigð í viku frá föstudegi til föstudags. Hægt er að sækja um eina viku með allt að fjórum valmöguleikum. Verð fyrir viku er 30.000.kr. Félagsmaður þarf að eiga að lágmarki 36 punkta til að geta sótt um.

Umsóknarfrestur rennur út 29. mars 2023

Fyrsta úthlutun fer fram  31. mars og munu allir þeir sem sóttu um fá senda niðurstöðu úthlutunarinnar í tölvupósti

10. apríl - greiðslufrestur rennur út á miðnætti.

11. apríl - ógreiddar umsóknir felldar og lausar til bókunar fyrir þá sem fengu höfnun.

14. apríl - opnað fyrir alla félagsmenn - punktalaust.

Starfsfólk  mun aðstoða félagsmenn eftir þörfum við umsóknir á vefnum í síma 456 5190

Félagið á einnig hlut í orlofshúsi á Spáni og er það leigt í tvær vikur í senn að sumrinu, frá þriðjudegi til þriðjudags. Leiguverð fyrir tvær vikur er kr. 111.000 og er skilagjald innifalið í leiguverði. Ekki þarf að eiga punkta til að panta húsið. Hér er hægt að skoða laus tímabil á Spáni, en íbúðin en eingöngu bókanleg í gegnum Verk Vest í síma 456 5190.

Á orlofsvef félagsins er einnig hægt að kaupa, hin ýmsu kort og ferðaávísanir á gistiheimilum og hótelum víðs vegar um landið. Ferðaávísunin er inneign sem hægt er að nota til að greiða fyrir gistingu hjá einhverjum af fjölmörgum samstarfsaðilum. Við kaup á ferðaávísun fær félagsfólk Verk Vest hlutfallslega niðurgreiðslu frá félaginu.

Deila