Translate to

Fréttir

Viðræðum við útgerðarmenn slitið - allt járn í járn

Frá félagsfundi í sjómannadeild Verk Vest Frá félagsfundi í sjómannadeild Verk Vest

Samningarnefndir sjómanna og útgerðar hittust á samningafundi hjá sáttasemjara kl.13.00 í dag. Eftir frekar stuttar viðræður var ljóst að ekki væri lengra komist og viðræðurnar væru járn í járn þar sem hvorugur aðilinn ætlar að gefa tommu eftir af kröfum. Eftir stutt fundarhlé lögðu samningsaðilar sjómanna og útgerðar fram bókanir um stöðuna og í kjölfarið lýsti sáttasemjari viðræðurnar árangurlausar. Nýr fundur hefur ekki verið boðaður en samkvæmt lögum ber sáttasemjara að kalla deiluaðila til fundar innan 2ja vikna frá því viðræðum er slitið.

Deila