Translate to

Fréttir

Vinnandi fólk hræðist ekki baráttuna fyrir bættum kjörum - ályktun um stöðu kjaraviðræðna

Þann 28. febrúar lauk gildistíma megin þorra kjarasamninga aðildarfélaga ASÍ. Þrátt fyrir lausa samninga er ennþá himinn og haf milli deiluaðila og ólíklegt að gengið verði frá endurnýjun samninga í bráð. Gera má ráð fyrir að launafólk sé að sigla inn í tímabil átaka þar sem samstöðu er þörf sem aldrei fyrr. Þegar svo er komið er áríðandi að öll verkalýðshreifingin standi saman í baráttunni fyrir mannsaæmandi kjörum á vinnumarkaði.

Stjórn Verk Vest lítur svo á að allar kröfur sem hafa komið fram frá aðildarfélögum ASÍ séu hófstilltar og sanngjarnar. Við erum að semja fyrir mjög ólíka hópa og sínum augum lítur hver silfrið. Við þurfum að ganga í takt og styðja við framkomnar kröfur aðildarfélaga en ekki tala þær niður.

Það er skylda okkar ALLRA að koma í veg fyrir að gjáin milli efnaminni og efnameiri dýpki meira en orðið er. Látum Samtök atvinnulífsins ekki reka fleyga í okkar raðir, þéttum frekar raðirnar sem aldrei fyrr og verjum kjör ALLRA á vinnumarkaði. Vinnandi fólk hræðist ekki baráttuna fyrir bættum kjörum.

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Deila