Translate to

Fréttir

1. maí hátíðarhöld á Ísafirði og Suðureyri

Tökum öll þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna.

Union members! Show solidarity and take part in the parade.

Wszyscy bierzemy udział w pochodzie zwiazków zawodowych.

Lagt verður af stað frá Baldurshúsinu, Pólgötu kl. 13:45. Gengið verður að

Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi.

Dagskráin í Edinborgarhúsi:

Lúðrasveit tónlistarskólans:

Stjórnandi Madis Maekalle

Ræðumaður dagsins:

Finnbogi Sveinbjörnsson formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga.

Söngatriði:

Stúlknatríóið HIK syngur nokkur lög

Jafnrétti og margbreytileiki:

Sædís María Jónatansdóttir áhugakona um jafnréttismál.

Tónlistaratriði:

Sindri Freyr Sveinbjörnsson, Ísland got talent stjarna, spilar og syngur.

Tónlistaratriði:

Blúshljómsveitin Akur flytur nokkur lög.

Kaffiveitingar í umsjón Slysavarnardeildarinnar Iðunnar

í Guðmundarbúð, Sindragötu 6, að hátíðarhöldum loknum.

Kvikmyndasýningar fyrir börn

í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og 16:00

 

Hátíðarhöld á Suðureyri:

14:00 Kröfuganga frá Brekkukoti. - Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar.

Félagsheimili Súgfirðinga: Kaffiveitingar.

Ræða dagsins: Finnbogi Sveinbjörnsson formaður VerkVest.

Tónlistarflutningur/ söngur barna. - HIK söngur stúlknatríó.

 

Allir velkomnir - Baráttukveðjur.

1. maí nefndir á Ísafirði og Suðureyri

Deila