Translate to

Fréttir

Ályktun miðstjórnar ASÍ um vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur þá ákvörðun peningastefnunefndar að lækka stýrivexti skref í rétta átt nú þegar skýr merki eru um kólnun í hagkerfinu. Peningalegt aðhald þrengir nú þegar verulega að skuldsettum heimilum, og getur ýtt undir hraðari kólnun hagkerfisins og stuðlað að auknu atvinnuleysi.  

Samkvæmt spá Seðlabankans hægir verulega á hagvexti á þessu ári og hinu næsta. Þar dregur bæði úr útflutningi stóriðju og sjávarafurða. Jafnframt er búist við auknu atvinnuleysi á næstu misserum. Á sama tíma væntir bankinn þess að einkaneysla vaxi nokkuð. Nýlegar tölur um kortaveltu eru til marks um að hluti þjóðarinnar sé í góðu  skjóli hárra vaxta og geti haldið uppi mikilli neyslu á meðan byrðar peningastefnunnar eru bornar af skuldsettum heimilum og ungu fólki. Verkalýðshreyfingin bendir á að umsamdar launahækkanir kjarasamninga tryggðu launafólki hóflegar launahækkanir sem studdu við verðbólgumarkmið Seðlabankans og áhyggjur Seðlabankans af launaskriði á vinnumarkaði eru ekki á ábyrgð almenns launafólks.  

Miðstjórn bendir þó á að megindrifkraftur verðbólgu um þessar mundir er enn hækkanir á leiguverði sem rekja má til framboðsskorts og úrræðaleysis stjórnvalda á húsnæðismarkaði. Við hátt vaxtastig og stíf lánþegaskilyrði er fyrirséð að spenna ríki áfram á leigumarkaði og ýti undir aukinn ójöfnuð milli þeirra sem eiga og þeirra sem eiga ekki. Óþolandi er að launafólk, ungt fólk og einstaklingar á leigumarkaði beri þyngstu byrðarnar af hagstjórnarmistökum og óstjórn í húsnæðismálum.  

Hægt hefur á hjöðnun verðbólgunnar á þessu ári, hún mælist  4,3% um þessar mundir en 3,3% sé horft framhjá áhrifum húsnæðiskostnaðar. Verðbólga skýrist nú í auknum mæli af hækkunum á matvælaverði en árshækkun á mat- og drykkjarvörum mælist nú tæplega 6% . Miðstjórn kallar eftir að fyrirtæki og hið opinbera sýni ábyrgð og standi við markmið þeirra kjarasamninga sem gerðir voru í mars 2024. Óboðlegt er  að stórir aðilar í heildsölu, smásölu og eldsneytissölu gangi gegn markmiðum kjarasamninga og auki arðsemi í krafti fákeppni.   

Miðstjórn ASÍ minnir á að langtíma kjarasamningar voru undirritaðir í fyrra með það meginmarkmið að stuðla að lækkun vaxta og minni verðbólgu. Í því fólst skuldbinding um að atvinnulífið héldi aftur af verðhækkunum og loforð stjórnvalda um að halda aftur af  gjaldskárhækkunum. Við þetta hefur ekki verið staðið og enginn sátt mun ríkja á vinnumarkaði ef fyrirtæki og opinberir aðilar skorast undan þessari ábyrgð sinni.  

Deila