Translate to

Fréttir

Áskorun til bæjar- og sveitastjórna á Vestfjörðum

Vegna þeirra alvarlegu stöðu sem upp er komin í samningaviðræðum við samninganefnd Sambands íslenskra sveitafélaga hefur stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga samþykkt að senda eftirfarandi áskorun til bæjar- og sveitastjórna á félagssvæði Verk Vest.

Undanfarna mánuði hefur Starfsgreinasamband Íslands (SGS), sem Verkalýðsfélag Vestfirðinga (Verk Vest) á aðild að, átt í kjarasamningsviðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna félagsmanna sinna sem vinna hjá sveitarfélögum.

Kjaraviðræður við samninganefnd sveitafélaga (SNS) hafa gengið mjög hægt og kveður við mjög harðan tón hjá SNS í viðræðum aðila. Sérstaklega steytir á í lífeyrismálum en sveitarfélögin hafa ekki staðið við fyrirheit um að jafna lífeyrisréttindi milli félagsmanna BSRB og félagsmanna SGS innan ASÍ.

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) hefur nú þegar samið við einstök sambönd og stéttarfélög um að þeir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögunum, skuli fá greiddar kr. 105.000 m.v. fullt starf þann 1. ágúst nk. sem greiðslu inn á væntanlegan samning. Þegar samningnanefndir SGS og Eflingar kröfðust þess að félagsmenn þeirra hjá sveitafélögunum fengju líka umrædda greiðslu var því alfarið hafnað af hálfu samninganefndar sveitafélaga með þeim rökum að SGS og Efling væru búin að vísa kjaradeilunni til ríkissáttasemjara.

Í síðustu viku bar ríkissáttasemjari fram þá ósk SGS að félagsmenn SGS fengju eingreiðslu að upphæð kr. 105.000 sem SNS hefur samið um við aðra viðsemjendur sína sem hluta af samkomulagi um endurskoðun viðræðuáætlana. Það skýtur skökku við að SNS skuli líta svo á að það sé ekki í þeirra höndum að gera samninga um skipulag kjaraviðræðna aðila þó svo SNS hafi þegar gert sambærilega samninga um eingreiðslur við önnur samtök stéttarfélaga svo sem BSRB og Samiðn.

Það er með öllu ólíðandi og er samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga til vansa að skilja þessa starfsmenn sem eru félagsmenn í Verk Vest eftir úti í kuldanum. Starfsgreinasamband Íslands og Verkalýðsfélag Vestfirðinga trúa því ekki fyrr en á reynir, að sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum hyggist koma svona fram við starfsfólk sem oftast er á lægstu launum hjá sveitafélögum.

SGS og Verk Vest skora á sveitarfélögin að semja við SGS um sömu eingreiðslur og aðrir starfsmenn sveitafélaganna munu fá þann 1. ágúst nk. eða taka að öðrum kosti sjálfstæða ákvörðun um að greiða sínu fólki inn á væntanlegan kjarasamning til jafns við annað starfsfólk.

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Deila