Translate to

Fréttir

Desemberuppbót 2012

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum  að greiða starfsmönnum sínum desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót greiðist sem eingreiðsla, er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Hér að neðan gefur að líta upphæðir desemberuppbótar fyrir árið 2012 hjá Verk Vest. Hægt er að kynna sér hvaða reglur gilda um greiðslu og útreikning desemberuppbótar hjá SGS.IS.

Desemberuppbót 2012

Almenni samningur milli SGS og SA 

  50.500 kr.

Starfsfólk á hótel og veitingastöðum ( bensínstöðvar )

  50.500 kr.

Samningur f.h. Ríkissjóðs og SGS

  50.500 kr.

Samingur SGS og Launanefndar sveitarf.

  78.200 kr.

Starfsfólk Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum

  84.121 kr.

Samningur verslunar og skrifstofufólks

  57.300 kr.

Vinnustaðasamningur Ísl. Kalkþörungafélagsins

  67.882 kr.

Bændsamtök Íslands og SGS

  50.500 kr.

Landsamband smábátaeigenda og SGS (beitningin)

  50.500 kr.

Kjarasamningar iðnaðarmanna ( Samiðn )

  50.500 kr.




Deila