Translate to

Fréttir

Desemberuppbót 2020

Desemberuppbót skal greidd ekki síðar en 15. desember, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Fullt ársstarf telst 45 unnar vikur eða meira.

Full desemberuppbót 2020 er sem hér segir:

Verkafólk, starfsmenn á veitinga-, þjónustu- og greiðasölustöðum, beitningamenn á smábátum, starfsmenn á bændabýlum............................................... 94.000

Verslunar- og skrifstofufólk................................. 94.000

Kalkþörungaverksmiðjan Bíldudal........................ 108.529

Iðnaðarmenn og iðnnemar.................................. 94.000

Þörungaverksmiðja Reykhólum.......................... 138.206

Starfsmenn ríkisstofnana................................... 94.000

Starfsmenn sveitarfélaga...................................118.750

Hjá sveitafélögum miðast 100% starf við tímabilið 1. janúar til 30. nóvember sama ár. Hafi starfsmaður gegnt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall og/eða starfstíma, þó þannig að hann hafi starfað samfellt a.m.k. frá 1. september það ár. Starfsmaður sem lætur af störfum á árinu, en hafði þá starfað samfellt í a.m.k. 6 mánuði skal einnig fá greidda desemberuppbót miðað við starfstíma og starfshlutfall á árinu.

Deila