Translate to

Fréttir

Félagsmenn í Verk Vest samþykkja kjarasamning við sveitafélög á Vestfjörðum.

Atkvæðagreiðslu er nú lokið um nýjan kjarasamning á milli Starfsgreinasambandsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var 20. nóvember síðastliðinn. Starfsgreinasambandið fór með umboð 15 aðildarfélaga sinna og var samningurinn samþykktur í öllum félögunum, en í heildina samþykktu yfir 90% þeirra sem greiddu atkvæði. Félögin sem SGS fór með umboð fyrir eru: Aldan stéttarfélag, AFL starfsgreinafélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Þórshafnar og Verkalýðsfélag Vestfirðinga.

Kjörsókn hjá SGS var í heildina 33,14%, 2.749 félagar voru á kjörskrá og atkvæði greiddu 911. Hjá Verkalýðsfélagi Vestfirðinga voru 212 á kjörskrá og greiddu 40 atkvæði eða 18,87%. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 33 já eða 82,5% nei sögðu 6 eða 15% auðir seðlar 1 eða 2,5%.  Eins og kemur fram hér að ofan var þokkalega kjörsókn í heildina hjá SGS félögum, hægt er að skoða kjörsókn og niðurstöðu kosninga hjá einstökum félögum hér

Deila