Translate to

Fréttir

Framhaldsþing SGS hefst í dag

Starfsgreinasamband Íslands mun halda framhaldsþing sambandsins fimmtudaginn 10. maí n.k. á Hótel Reykjavík Natura (áður Hótel Loftleiðir). Þingið, sem er undir kjörorðinu „Horft til framtíðar", hefst kl. 10:00 með ávarpi Björns Snæbjörnssonar, formanns sambandsins. Megináherslur þingsins verða umræður og afgreiðsla nýrra reglugerða og laga SGS, en undanfarna mánuði hefur Starfshópur starfsháttanefndar SGS unnið að því að móta tillögur um breytingar á lögum SGS sem snúa að hlutverki SGS og uppbyggingar á stjórnkerfi sambandsins ásamt því að hafa gert tillögur að nokkrum nýjum reglugerðum sem eiga að bæta þjónustu og starfsemi sambandsins gagnvart aðildarfélögum SGS. Á þinginu verður einnig farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun sambandsins.

Þingið munu sitja 134 fulltrúar frá 18 aðildarfélögum.  Fulltrúar Verk Vest á þinginu eru þau Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður, Eygló Jónsdóttir, gjaldkeri og Gunnhildur B. Elíasdóttir, ritari. Stefnt er á að þinginu ljúki kl. 16:00, þ.e. eftir að kosningum í framkvæmdastjórn lýkur.

Deila