Hækkun iðgjalds 1. júlí – val um ráðstöfun viðbótariðgjalds
- Allt viðbótariðgjaldið fer í samtryggingardeild nema sjóðfélagi óski eftir að því verði ráðstafað í tilgreinda séreign.
 
- Iðgjaldið greiðist til þess sjóðs sem sjóðfélagi á aðild að.
 
- Mikilvægt er að sjóðfélagar geri sér grein fyrir að réttindi í samtryggingardeild geta falið í sér verðmæt tryggingaréttindi.
 
- Með ráðstöfun iðgjalds í tilgreinda séreign ávinnst ekki, hvað þau iðgjöld snertir, réttur til ævilangs ellilífeyris, né örorku- og makalífeyris með framreikningi heldur byggir sjóðfélagi upp sjóð sem er séreign viðkomandi.
 - Sjóðfélagi má hvenær sem er breyta því hvernig hann ráðstafar iðgjaldi umfram 12%.
 
- Sjóðfélagar í Gildi geta valið um þrjár mismunandi fjárfestingarleiðir.
 
- Hægt verður að byrja að taka út tilgreindan séreignarsparnað frá 62 ára aldri og dreifist þá útborgun á þau ár sem vantar í 67 ára aldur. Undantekning ef inneign nemur lægri fjárhæð en 1.277.000 kr. (m.v. júní 2017).
 
- Tilgreindan séreignarsparnað verður ekki unnt að nota til að safna skattfrjálst til húsnæðiskaupa eða til að greiða skattfrjálst niður húsnæðislán.
 
- Tilgreind séreign erfist.
 - Sjóðfélagi þarf að taka upplýsta ákvörðun um ráðstöfun iðgjalds og tilkynna sínum lífeyrissjóði um ráðstöfun iðgjaldsins (sjá hnapp á forsíðu www.gildi.is).