Translate to

Fréttir

Iðnaðarmenn innan ASÍ gera samkomulag um sameiginlegar kjaraviðræður

Landssambönd og félög iðnaðarmanna með um 18.000 félagsmenn hafa gert með sér samkomulag um samstarf í komandi kjaraviðræðum. Samkomulagið tekur m.a. til framsetningar á kröfum og markmiðum í aðalkjarasamningum félaganna við SA, samstilltra verkfallsaðgerða og samráðs á vettvangi ASÍ.

Krafa iðnaðarmanna í komandi kjaraviðræðum er endurskoðun á launakerfum iðnaðarmanna með það að markmiði að dagvinnulaun dugi til framfærslu. Hún næst meðal annars með því að auka framleiðni og stytta vinnutíma. Núverandi launakerfi byggir á lágum grunnlaunum sem neyðir launamenn til að halda uppi afkomu sinni með mikilli yfirvinnu.
Mikil þörf er fyrir nýliðun í greinunum en þetta vinnufyrirkomulag er úrelt og hefur skapað starfsumhverfi sem höfðar ekki til ungs fólks. Iðnaðarmenn gera kröfu um fjölskylduvænt samfélag þar sem jafnvægi er á milli vinnutíma og einkalífs.
Félögin telja afar brýnt að unnið verði að fyrirbyggjandi aðgerðum til að koma í veg fyrir félagsleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði og komið verði á víðtækara vinnustaðaeftirliti.

Að samkomulaginu standa Rafiðnaðarsamband Íslands, SAMIÐN, Félag bókagerðarmanna, MATVÍS, Félag hársnyrtisveina og VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna.

Formannafundur Samiðnar, sem Verk Vest er aðili að, heldur formannafund í dag þar sem gera má ráð fyrir að samkomulagið verði kynnt. 

Deila