Translate to

Fréttir

Iðnaðarmenn samþykkja heimild verkfallsboðunar

Félög iðnaðarmanna sem eru með samstarf við endurnýjun á almenna kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins, MATVÍS, Grafía/FBM, VM, aðildarfélög Samiðnar , Félag hársnyrtisveina og aðildarfélög RSÍ viðhöfðu allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna um heimild til verkfallsboðunar.

Atkvæðagreiðslunni lauk í dag kl. 10:00.

Kosningarnar náðu til 10.499 félagsmanna í 25 stéttarfélögum og var kosningaþátttakan 44.6%

Samþykkt var að boða til verkfalla í öllum stéttarfélögunum sem hæfust 10. júní   með tímabundnu verkfalli og ótímabundnu verkfalli 24. ágúst n.k

Já sögðu 75,1%

Nei sögðu 22,1%

Þeir sem ekki tóku afstöðu 2,8%

Heimild til verkfallsboðunar var því samþykkt með miklum meirihluta atkvæða og náist ekki ásættanlegur árangur í viðræðum við atvinnurekendur á næstu dögum, koma framangreind verkföll til framkvæmda.

Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar: sími 8620171

Guðmundur Ragnarsson, formaður VM: sími 8610020

Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður RSÍ : sími 8563466

Deila