Translate to

Fréttir

Kauptaxtar 2008

Ekki mikill afgangur ! Ekki mikill afgangur !
Nokkrar óþolinmæði er farið að gæta hjá félagsmönnum okkar varðandi útgáfu á nýju kauptöxtunum. Kauptaxtar og kjarasamningar sem hafa verið undirritaðir á þessu ári hafa verið uppfærðir á heimasíðu félagsins undir liðnum kjaramál. Annars vegar er hægt að finna nýju kjarasamningana frá því í vetur og þá eldri til samanburðar. Þá er einnig hægt að skoða einstakar kaupgjaldskrár. Ekki hefur verið ráðist í að gefa þetta út vegna þeirra óvissu sem ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar um hvort þessir samningar verði framlengdir í óbreyttri mynd á næsta ári. Félagsmenn eru hvattir til að nýta heimasíðuna þangað til línur skýrast enn frekar.  Þeir sem ekki hafa tækifæri til að prenta taxtana út sjálfir eru beðnir að snúa sér til skrifstofu félagins og mun starfsfólk félagsins útvega það sem vantar. Fleiri félög hafa ákveðið að fara þessa leið enda glapræði að leggja út þennan kostnað eins og staðan er.
Deila