Translate to

Fréttir

Kjaramál og kaupmáttur !

Alþýðusamband Íslands í samvinnu við Verk Vest, Félag járniðnaðarmanna og Vls Bolungavíkur boða til fundar á Hótel Ísafirði  mánudaginn 18. Mars kl. 20:00.

Til fundarins eru sérstaklega boðaðir  stjórnarmenn og trúnaðarmenn Verkalýðsfélags Vestfirðinga, Félags járniðnaðarmanna á Ísafirði og Verkalýðs og sjómannafélags Bolungarvíkur.

Fjallað verður um stöðu kjaramála og kaupmáttar með sérstakri áherslu á baráttuna við verðbólguna og stefnu og áherslur ASÍ í þeim efnum, sókn í atvinnumálum  og hugmyndir ASÍ  um nýtt  húsnæðiskerfi. 

Á fundinum mun liggja frammi  upplýsingaefni/smárit um hvern efnisþátt fyrir sig.



Deila